Frétt
3.6.2010
Íslensk repjuolía á ráðherrabíl
Í dag heimsótti Kristján Möller samgönguráðherra Siglingastofnun og þáði á bílinn íslenskt umhverfisvænt eldsneyti sem Hermann Guðjónsson siglingamálastjóri og Gísli Viggósson forstöðumaður Rannsókna- og þróunarsviðs afhentu.
Um er að ræða fyrsta bíódísilinn sem framleiddur hefur verið á Íslandi í sérsmíðuðum búnaði í eigu Siglingastofnunar, en eldsneytið er afrakstur rannsóknarverkefnis sem stofnunin hleypti af stokkunum fyrir tveimur árum. Var verkefnið í umsjón Jóns Bernódussonar verkfræðings hjá Siglingastofnun og unnið í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands og bændur á nokkrum stöðum á landinu. Fól það í sér tilraunaræktun á tvíærum káljurtum sem nefnast repja og nepja sem úr má vinna m.a. umhverfisvæna dísilolíu. Jafnframt gerði það ráð fyrir að ræktað væri á annars ónýttum landsvæðum og kæmi þannig ekki í stað matvælaræktunar.
Hefur verkefnið gengið með miklum ágætum og lofar góðu, svo hugsanlega getum við Íslendingar með tímanum orðið sjálfum okkur nóg um eldsneytisolíu á fiskiskipaflotann. Í máli ráðherra kom enda fram að það njóti velvilja samgönguyfirvalda og í því geti falist miklir möguleikar. Þess má geta að bifreið ráðherrans tók þessari nýju framleiðslu vel og rann ljúflega úr hlaði að heimsókn lokinni.
Kastljósið var á staðnum eins og sjá má hér.
Ýmsar eldri fréttir um repjuræktun:
Fyrsta uppskeran af umhverfisvænum orkugjafa
Framtíðareldsneyti vex ört
Greinargerð um tilraunapressun á repjufræjum
Pressun á repjufræjum
Umhverfisvænir orkugjafar
Bíódisil
Verða íslensk fiskiskip knúin repjuolíu?
Olíu dælt á brúsa.
Gísli Viggósson og Hermann Guðjónsson afhenda ráðherra olíuna.
Íslensku umhverfisvænu eldsneyti hellt á ráðherrabílinn.
Frá vinstri: Jón Bernódusson, Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri, Hermann Guðjónsson siglingamálastjóri, Kristján Möller samgönguráðherra og Guðbjartur Einarsson vélfræðingur.
Sérsmíðuð vél fyrir Siglingastofnun til framleiðslu á umhverfisvænu eldsneyti unnu úr repjufræjum.