Frétt

23.4.2007

Alþjóðleg skipaskrá á Íslandi

Þann 1. janúar 2008 taka gildi lög um íslenska alþjóðlega skipaskrá nr. 38/2007 og lög um skattlagningu kaupskipaútgerðar, nr. 86/2007.

Markmið laga þessara er að stuðla að skráningu kaupskipa á Íslandi. Hlutafélög og einkahlutafélög, sem gera út kaupskip sem skráð eru á íslenska alþjóðlega skipaskrá (IIS), geta ákveðið að greiða af kaupskipaútgerð sinni skatt samkvæmt lögum nr. 86/2007 í stað tekjuskatts samkvæmt lögum nr. 90/2003. Lögin taka til kaupskipa sem flytja farm eða farþega gegn endurgjaldi í siglingum milli landa og farmflutningum innanlands og eru 100 brúttótonn eða stærri.

Hér má nálgast umfjöllun á Alþingi um lög um íslenska alþjóðlega skipaskrá, nr. 38/2007.

Hér má nálgast umfjöllun á Alþingi um lög um skattlagningu kaupskipaútgerðar, nr. 86/2007.

Skýrsla starfshóps um skráningu kaupskipa á íslenska skipaskrá er hér.

Unnt er að fræðast um efni laganna á eftirfarandi fréttasíðum:

 Siglingastofnun Íslands, 2. mars 2007.

Samgönguráðuneyti, 9. mars 2007.

Samgönguráðuneyti, 1. mars 2007.


Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi