Gæðastjórnun
Stöðugt er unnið að innri og ytri úttektum hjá stofnuninni, stjórnendur rýna gæðastjórnunarkerfið reglulega, tekið er á móti kvörtunum með formlegum hætti og umbótaverkefnum ýtt úr vör.
Gæðavottun á útgáfu alþjóðlegra atvinnuskírteina sjómanna (STCW)
Níunda desember 2005 fékk Siglingastofnun Íslands afhent vottorð frá Vottun hf. sem staðfestingu þess að stofnunin starfrækir gæðakerfi sem samræmist kröfum ÍST EN ISO 9001:2000 staðalsins um útgáfu áritunar og endurnýjunar alþjóðlegra atvinnuskírteina fyrir sjómenn samkvæmt alþjóðasamþykktinni um menntun, þjálfun, skírteini og vaktstöður sjómanna (STCW-samþykktinni).
Skírteinin veita réttindi til starfa á farþega- og flutningaskipum sem eru í alþjóðasiglingum og eru skráð í ríkjum sem hafa að mati Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar uppfyllt ákvæði alþjóðasamþykktarinnar um menntun og þjálfun, skírteini og vaktstöður sjómanna (STCW) frá 1978, með síðari breytingum.
Þessi samþykkt hefur verið tekin upp í íslenska löggjöf með lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa nr. 76/2001 og reglugerð um sama efni nr. 416/2003. Þar er miðað við að nám og kennsla í sjómannaskólum og útgáfa alþjóðlegra skírteina og áritana hjá Siglingastofnun Íslands skuli vera samkvæmt viðurkenndu gæðastjórnunarkerfi.
Ráðgjafastofan 7.is aðstoðaði Siglingastofnun við að ljúka vottunaráfanganum.
| |
|
| Skjal um vottun afhent. Fr.v.: Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, Kjartan Kárason, framkvæmdastjóri Vottunar hf. og Hermann Guðjónsson siglingamálastjóri. |
Guðmundur Guðmundsson, gæðastjóri Siglingastofnunar með skjalið og Gunnar H. Guðmundsson og Guðrún Lárusdóttir, ráðgjafar hjá 7.is sem voru Siglingastofnun til ráðgjafar við vottunina. |
Siglingavernd
Siglingaverndin kallar á öguð vinnubrögð innan stofnunarinnar, verklagsreglur, vinnulýsingar og skoðunarhandbækur sem munu nýtast væntanlega bæði fyrir stofnunina og hafnir landsins í framtíðinni. Ákveðið hefur verið að byggja upp gæðahandbók siglingaverndar sem verður aðskilin frá öðrum gæðahandbókum Siglingastofnunar. Fjárfest var í Focal-gæðahandbók og ytri úttektarkerfi sérstaklega fyrir siglingaverndina.