7.2.2.2 Viðauki XIII / v

7.2.2.2 Viðauki XIII / v
Innleiddar EES-gerðir á sviði siglinga
Uppfært febrúar 2010

 

 Nr.

 Gerð

Flokkur

Lýsing

50

 386R4056

Flutningaskip

Samkeppnismál

51

 388R4260

Flutningaskip

Samkeppnismál

52

 379R0954

Flutningaskip

Samkeppnismál

53

 386R4055 

Flutningaskip

Samkeppnismál

53a

 392R3577 

Flutningaskip

Gestaflutningar (cabotage)

54

 379L0115

Skip

Leiðsaga og umferðarstjórnun

55a

 302L0059

Skip

Vöktunar-, eftirlits- og upplýsingakerfi

55b

 394L0057

Skoðanir skipa

Kröfur til stofnana og flokkun

55c

 394R2978

Flutningaskip

Mælingar sjókjölfestugeyma

56a

 393R2158

Farþega- og flutningaskip

SOLAS og MARPOL

56b

 395L0021

Farþega- og flutningaskip

Hafnarríkiseftirlit

56ba

 396L0040

Farþegaskip og flutningaskip

Skoðunarmenn hafnarríkiseftirlits

56bb

 304R0725

Farþega- og flutningaskip

Vernd skipa og hafnaraðstöðu

56c

 395R3051

Farþegaskip

Öryggisstjórnun

56ca

 399L0035

Farþegaskip

Skoðunareftirlit gestaríkis

56cb

 303L0025

Farþegaskip

Stöðugleiki ekjufarþegaskipa

56d

 396L0098

Farþega- og flutningaskip

Skipsbúnaður

56e

 398L0041

Farþegaskip

Talning og skráning farþega

56f

 398L0018 

Farþegaskip

Smíði og búnaður

56g

 397L0070

Fiskiskip

Smíði og búnaður

56h 

 399L0095

Farþega- og flutningaskip

Vinnutími sjómanna á skipum utan EES

56i

 300L0059

Skip

Móttaka á úrgangi og farmleifum frá skipum í höfnum

56j

 301L0025

Farþega- og flutningaskip

Menntun og þjálfun áhafnar

56k

 301L0096

Flutningaskip

Lestun og losun

56l

 302L0006

Skip

Tilkynningar skipa (FAL)

56m

 302R0417

Flutningaskip

Krafa um tvöfaldan byrðing

56n

 302R2099

Skip

Nefnd EB um öryggi á höfunum og varnir gegn mengun frá skipum

56o

 302R1406

Skip

Siglingaöryggisstofnun Evrópu

56p

 303R0782

Skip

Lífræn tinsambönd

56q

 304R0789

Skip

Skráningar skipa

56r

 305R0884

Skip

Úttektir ESB á siglingavernd

56s

 2005/45/EB

Skip

Lágmarksþjálfun sjómanna

56t  

 2005/65/EB

Skip

Hafnarvernd

56u

 2006/336/EB

Skip

Öryggisstjórnun

57

 386R4057

Flutningaskip

Samkeppnismál

58

 386R4058

Flutningaskip

Samkeppnismál

59

 383D0573

Flutningaskip

Samkeppnismál

59a

 392D0143

Skip

Leiðsaga og umferðarstjórnun

59b

 394Y1231(08)

Farþegaskip

Öryggismál

50. Flutningaskip; samkeppnismál. 
386R4056 Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 4056/86 frá 22. desember 1986 sem setur nákvæmar reglur um beitingu 85. og 86. gr. sáttmálans gagnvart flutningum á sjó. Reglugerð (EB) nr. 1419/2006 felldi úr gildi reglugerð 4056/86 (endanlega 18. okt. 2008) og breytti reglugerð (EB) nr. 1/2003 hvað varðar framlengingu gildissviðs til þess að ná yfir leigu- og gestaflutninga (cabotage and international tramp services),
Upplýsingasíða ESB. 
Efni: Reglugerðin kveður á um ýmsar undanþágur frá greinum 85 og 86 í Rómar-sáttmálanum, þ.e. um einokun. Reglugerðin undanþiggur ýmsa hefðbundna samninga í áætlunarsiglingum kaupskipa, s.s. samsiglingakerfi (samtök um flutningsgjöld), samræmingu á viðkomu skipa o.fl. 
Innleiðing:  Augl. um gildistöku ákvæða er leiða af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið vegna flutninga á sjó, 572/1993. Reglugerð nr. 817/2006 um innleiðingu reglugerðar ráðsins nr. 4056/86 frá 22. desember 1986 sem setur nákvæmar reglur um beitingu 85. og 86. gr. Rómarsáttmálans gagnvart flutningum á sjó. Siglingalög, 34/1985.  Samkeppnislög nr. 44/2005.

 

51. Flutningaskip; samkeppnismál. 
388R4260 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EBE) nr. 4260/88 frá 16. desember 1988 um tilkynningar, kærur, umsóknir og skýrslur sem kveðið er á um í reglugerð ráðsins (EBE) nr. 4056/86 sem setur nákvæmar reglur um beitingu 85. og 86. gr. sáttmálans gagnvart flutningum á sjó. Fallin úr gildi með brottfalli reglugerðar (EBE) 4056/86
Efni: Reglugerðin kveður á um tilkynningar og kvartanir vegna brota á reglugerð nr. 4056/86. 
Innleiðing: Augl. um gildistöku ákvæða er leiða af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið vegna flutninga á sjó, 572/1993. Siglingalög, 34/1985.

 

52. Flutningaskip; samkeppnismál.

379R0954  Reglugerð ráðsins (EBE) nr.954/79 frá 15. maí 1979 um fullgildingu aðildarríkjanna á eða aðild að samningi Sameinuðu þjóðanna um starfsreglur fyrir samsiglingakerfi. 
Efni: Reglugerðin kveður á um ákveðna tilhögun við gerð samninga aðildarríkja um samsiglingakerfi á ákveðnum siglingaleiðum í samræmi við sáttmálann. Reglugerðin byggir á því meginsjónarmiði að málefni sem varða starfsreglur um samsiglingakerfi skipti ekki einungis miklu máli fyrir aðildarríkin heldur einnig fyrir sambandið sem slíkt og því sé mótun sameiginlegrar stefnu hér að lútandi mikilvæg. Innleiðing: Augl. um gildistöku ákvæða er leiða af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið vegna flutninga á sjó, 572/1993. Siglingalög, 34/1985.

 

53. Flutningaskip; samkeppnismál. 
386R4055  Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 4055/86 frá 22. desember 1986 um beitingu meginreglunnar um frjálsa þjónustustarfsemi í flutningum á sjó milli aðildarríkja og milli aðildarríkja og landa utan bandalagsins.
Efni: Reglugerðin kveður á um opna og frjálsa samkeppni til handa útgerðum, hvar sem því verður við komið. Aðildarríki mega ekki leggja hömlur á frelsi í kaupsiglingum, hvorki í innanlands- né alþjóðasiglingum. Ef slíkar hömlur eru á siglingum skulu þær afmáðar í áföngum til 1. janúar 1993.
Innleiðing: Augl. um gildistöku ákvæða er leiða af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið vegna flutninga á sjó, 572/1993. Siglingalög, 34/1985.
390R3573 Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3573/90 frá 4. desember 1990 um breytingu, vegna sameiningar Þýskalands, á reglugerð (EBE) nr. 4055/86 um beitingu meginreglunnar um frjálsa þjónustustarfsemi í flutningum á sjó milli aðildarríkja og milli aðildarríkja og landa utan bandalagsins.
Efni: Reglugerð þessi kveður á um breytingar vegna sameiningar Þýskalands.

 

53a. Farþegaskip; gestaflutningar (cabotage). 
392R3577  Reglugerð ráðsins (EBE) 3577/92 frá 7. desember 1992 um beitingu meginreglunnar um frjálsa þjónustustarfsemi í flutningum á sjó innan aðildarríkjanna (gestaflutningar á sjó).
Efni: Kveður á um aukið frelsi í gestaflutningum á sjó og að öll mál varðandi mönnunarreglur farþegaskipa og ferja, skuli vera á ábyrgð gestaríkis til 1. janúar 1999.
Innleiðing: Augl. um gildistöku reglugerðar ráðsins (EBE) nr. 3577/92 frá 7. desember 1992 um beitingu meginreglunnar um frjálsa þjónustustarfsemi í flutningum á sjó innan aðildarríkjanna (gestaflutningar á sjó), 563/1998. Siglingalög, 34/1985.

 

54. Skip; leiðsaga og umferðarstjórnun.
379L0115 Tilskipun ráðsins frá 21. desember 1978 um skipaleiðsögn úthafsleiðsögumanna í Norðursjó
og á Ermarsundi, nr. 79/115.
Efni: Tilskipunin gildir um aðildarríki, sem eiga lönd sem liggja að Norðursjó og  Ermarsundi. Hlutaðeigandi ríki eiga annars vegar að tryggja að ávallt séu fyrir  hendi úthafsleiðsögumenn til að lóðsa skip um Norðursjó og Ermarsund og að þeir hafi fengið fullnægjandi þjálfun og skírteini viðkomandi stjórnvalda.
Innleiðing:  Augl. um gildistöku ákvæða er leiða af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið um  skipaleiðsögu úthafsleiðsögumanna, 569/1993.  Lög um vaktstöð siglinga, 41/2003.

 

55a. Skip
302L0059 Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/59/EB frá 27. júní 2002 um vöktunar-, eftirlits- og upplýsingakerfi bandalagsins fyrir umferð á sjó og niðurfellingu tilskipunar ráðsins 93/75/EB.
Birt í Stjórnartíðindum ESB 5. ágúst 2002  
Upplýsingasíða ESB
Ákvörðun EES-nefndar 13/2003
Tilskipun EES 2002/84, 2. gr.
Birt í EES-viðbæti 56/2004, bls. 174
Innleiðing:  Þingályktun vegna tilskipunar 2002/59 (umferð á sjó)
Lög um vaktstöð siglinga, 41/2003
Rg. um vaktstöð siglinga og eftirlit með umferð skipa, nr. 672/2006.
Frétt á vefsíðu Siglingastofnunar 10. ágúst 2006.

 

55b.  Skoðanir skipa; kröfur til stofnana og flokkunarfélaga.
394L0057 Tilskipun ráðsins 94/57/EB frá 22. nóvember 1994 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og -skoðun og fyrir tilheyrandi starfsemi siglingamálayfirvalda.
Efni: Tók gildi innan ESB 31. desember 1995. Kveðið er á um tilteknar aðferðir sem aðildarríkin og viðkomandi stofnanir skulu fylgja við skoðun, eftirlit og viðurkenningu skipa í því skyni að fara að alþjóðasamningum um öryggi á hafi úti og varnir gegn mengun sjávar ásamt því að stuðla að frelsi til að veita þjónustu. Þetta ferli felur í sér að þróun og framkvæmd öryggiskrafna sem gilda um bol, vél-, raf- og stjórnbúnað skipa sem falla undir SOLAS, Load Line og MARPOL. Viðurkennd flokkunarfélög koma fram í ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar frá 12. júní 1998 398D0403 um breytingu á ákvörðun 96/587/EB um birtingu lista yfir flokkunarfélög sem hafa verið viðurkennd af aðildarríkjunum í samræmi við tilskipun ráðsins 94/57/EB. 
397L0058 Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 97/58/EB frá 26. september 1997 um breytingu á tilskipun ráðsins 94/57/EB um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og -skoðun og fyrir tilheyrandi starfsemi siglingamálayfirvalda.
Efni:  Tók gildi innan ESB 30. september 1998. Kveðið er á um að ályktun IMO A.739(18) um forskriftir hvað varðar eftirlits- og vottunarhlutverk viðurkenndra stofnana sem eru á vegum stjórnvalda falli undir tilskipunina.
301L0105 Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/105/EB frá 19. desember 2001 um breytingu á tilskipun ráðsins 94/57/EB um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og - skoðun og fyrir tilheyrandi starfsemi siglingayfirvalda.  
Birt í Stjórnartíðindum ESB, 22. janúar 2002
Birt í EES viðbæti 6/2003, bls 147
Upplýsingasíða ESB
Ákvörðun EES-nefndar 56/2002. , bls. 12
Tilskipun EES 2002/84/EB, 3. gr.
Innleiðing: Reglugerð um viðurkenningu flokkunarfélaga og um reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og -skoðun, nr. 142/2004. Lög um eftirlit með skipum, nr. 47/2003
Frétt á vefsíðu Siglingastofnunar 23. febrúar 2004.

 

55bb. Vernd skipa og hafnaraðstöðu
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 725/2004 frá 31. mars 2004 um að efla vernd skipa og hafnaraðstöðu.
Birt í Stjórnartíðindum ESB 29. apríl 2004
Upplýsingasíða ESB
Upplýsingasíða Siglingastofnunar Íslands
Ákvörðun EES-nefndar 14/2005 EES viðbætir 32/2005, bls. 19
Innleiðing: Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 474/2007 um vernd skipa og hafnaraðstöðu, nr. 920/2009.

 

55c. Flutningaskip; mælingar sjókjölfestugeyma.
394R2978 Reglugerð ráðsins (EB) nr. 2978/94 frá 21. nóvember 1994 um framkvæmd ályktunar Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) A.747 (18) um beitingu mælingarreglna um aðgreinda sjókjölfestugeyma í olíuflutningaskipum.
Efni: Miðar að því að beiting mælingareglna skipa verði með þeim hætti að hvati sé til hönnunar umhverfisvænna olíuflutningaskipa með aðgreindum sjókjölfestugeymum til að tryggja að kröfum um öryggi á hafi úti sé fullnægt og til að koma í veg fyrir mengun sjávar. Byggt er á því að þegar hafnar- og hafnsöguyfirvöld reikna út gjöld fyrir olíuflutningaskip skuli þau draga frá aðgreinda sjókjölfestugeyma.
Innleiðing: Rg. nr. 652/2009 um nefnd Evrópusambandsins um öryggi á höfunum og varnir gegn mengun frá skipum, sbr. 9. gr. rg. EB nr. 2099/2002

56a. Farþegaskip og flutningaskip; SOLAS og MARPOL.
393R2158 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EBE) nr. 2158/93 frá 28. júlí 1993 varðandi framkvæmd breytinga á alþjóðasamningi um öryggi mannslífa á hafinu, 1974, og alþjóðasamningi um varnir gegn mengun frá skipum, 1973, að því er reglugerð ráðsins nr. 613/91 varðar.
Efni:  Reglugerð þessi kveður á um framkvæmd breytinga á (SOLAS 1974) gert  til þess að auka kröfur um öryggi og varnir gegn mengun.
Innleiðing:  Augl. um gildistöku ákvæða er leiða af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið vegna flutninga á sjó, 442/1994. Siglingalög, 34/1985.

56b. Farþegaskip og flutningaskip; hafnarríkiseftirlit.
395L0021  Tilskipun ráðsins 95/21/EB frá 19. júní 1995 um hvernig alþjóðlegum stöðlum um öryggi skipa, mengunarvarnir, aðbúnað og vinnuskilyrði um borð í þeim er framfylgt (hafnarríkiseftirlit) að því er varðar skip sem nota hafnir innan bandalagsins og sigla á skipaleiðum sem heyra undir lögsögu aðildarríkjanna.
Efni: Tók gildi innan ESB 1. júlí 1997. Tekur til annarra skipa en fiskiskipa, herskipa,  tréskipa og lystisnekkja. Kveður á um eftirlit hafnarríkis með því að erlend skip fari eftir alþjóðlegum stöðlum um öryggi, mengunarvarnir, aðbúnað og vinnuskilyrði um borð. 
398L0025  Tilskipun ráðsins 98/25/EB frá 27. apríl 1998 um breytingu á tilskipun 95/21/EB um hvernig alþjóðlegum stöðlum um öryggi skipa, mengunarvarnir, aðbúnað og vinnuskilyrði um borð í þeim er framfylgt (hafnarríkiseftirlit) að því er varðar  skip sem nota hafnir innan bandalagsins og sigla á skipaleiðum sem heyra undir lögsögu aðildarríkjanna.
Efni: Tók gildi innan ESB 1. júlí 1998. Breytingar alþjóðasamþykkta eru teknar inn. 
398L0042 Tilskipun ráðsins 98/42/EB frá 19. júní 1998 um breytingu á tilskipun 95/21/EB um hvernig alþjóðlegum stöðlum um öryggi skipa, mengunarvarnir, aðbúnað og vinnuskilyrði um borð í þeim er framfylgt (hafnarríkiseftirlit) að því er varðar skip sem nota hafnir innan bandalagsins og sigla á skipaleiðum sem heyra undir lögsögu aðildarríkjanna.
Efni: Tók gildi innan ESB 30. september 1998. Gerðar eru breytingar á ákvæðum tilskipunarinnar um hvaða skip skulu tekin til skoðunar. 
399L0097 Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 1999/97 frá 13. desember 1999 um breytingu á tilskipun ráðsins 95/21/EB frá 19. júní 1995 um hvernig alþjóðlegum stöðlum um öryggi skipa, mengunarvarnir, aðbúnað og vinnuskilyrðum um borð í þeim er framfylgt (hafnarríkiseftirlit) að því er varðar skip sem nota hafnir innan bandalagsins og sigla á siglingaleiðum sem heyra undir lögsögu aðildarríkjanna.
Efni: Tók gildi innan ESB 13. desember 2000. Gerðar eru breytingar á viðaukum. 
301L0106 Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/106/EB frá 19. desember 2001 um breytingu á tilskipun 95/21/EB um hvernig alþjóðlegum stöðlum um öryggi skipa, mengunarvarnir, aðbúnað og vinnuskilyrði um borð í þeim er framfylgt (hafnarríkiseftirlit) að því er varðar skip sem nota hafnir innan bandalagsins og sigla á skipaleiðum sem heyra undir lögsögu aðildarríkjanna.  
Birt í Stjórnartíðindum ESB, 9. mars 2002
Ákvörðun EES nefndar 56/2002.
Tilskipun EES 2002/84/EB, 4. gr.
Innleiðing:  Reglugerð um hafnarríkiseftirlit með sjóflutningum, nr. 589/2003, sbr. 815/2004
Sjá frétt á vef Siglingastofnunar 13. ágúst 2003

56ba. Farþegaskip og flutningaskip; skoðunarmenn hafnarríkiseftirlits.
396L0040 Tilskipun framkvæmdarstjórnarinnar 96/40/EB frá 25. júní 1996 um að taka upp sameiginlega fyrirmynd að kennivottorði fyrir skoðunarmenn sem sjá um hafnarríkiseftirlit.
Efni:  Reglugerðin fjallar um kennivottorð, þ. e. skírteini þess sem framkvæmir  hafnarríkiseftirlit og upplýsingar sem þar eiga að koma fram.
Innleiðing: Reglugerð um hafnarríkiseftirlit með sjóflutningum, nr. 589/2003 (12. gr. og VII. viðauki).

56c.  Farþegaskip; öryggisstjórnun.
395R3051 Reglugerð ráðsins (EB) nr. 3051/95 frá 8. desember 1995 um öryggisstjórnun á ekjufarþegaferjum.
Efni: Tók gildi innan ESB 1. júlí 1996. Gildir um farþegaskip og fjallar um gildistöku  ályktunar IMO A.741(18) frá 4. nóvember 1993 um alþjóðareglur um öryggisstjórnun skipa og mengunarvarnir og gilda um ekjufarþegaferjur. Tilgangur reglugerðarinnar er að bæta umtalsvert öryggi mannslífa á sjó með ákveðnari beitingu og lögbindingu ISM-reglnanna, sem miða að því að koma á öryggisstjórnunarkerfum bæði um borð í skipum og innan útgerðarinnar. 
398R0179 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 179/98 frá 23. janúar 1998 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 3051/95 um öryggisstjórnun á ekjufarþegaferjum.
Efni: Tók gildi innan ESB 1. júlí 1998. Kveðið er á um að ályktun IMO A.788(19) skuli falla inn í tilskipunina. 
302R1970 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1970/2002 frá 4. nóvember 2002 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 3051/95 um öryggisstjórnun á ekjufarþegaskipum
Birt í Stjórnartíðindum ESB, 6. nóvember 2002.
Ákvörðun EES-nefndar 52/2003 - birt í EES viðbætir 39/2003, bls. 18.
Innleiðing: Auglýsing um gildistöku ákvæða er leiða af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið vegna flutninga á sjó, 574/1996, rg. nr. 594/2004, sbr. 10. gr. rg. EB nr. 2099/2002.
Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 3051/95 um öryggisstjórnun á ekjufarþegaskipum, 775/2004.
Lög um eftirlit með skipum, 47/2003.

56ca. Farþegaskip; skoðunareftirlit gestaríkis.
399L0035  Tilskipun ráðsins 1999/35/EB frá 29. apríl 1999 um kerfi lögboðinna skoðana til að stuðla að öruggum rekstri ekjuferja og háhraðafarþegafara í áætlunarferðum.
Efni:  Tók gildi innan ESB 1. desember 2000. Gildir um farþegaskip og fjallar um skilyrði þess að reka ferjur og hraðskreið farþegaskip innan sambandsins. Afnuminn er munur þess að reka ferjuþjónustu innanlands eða millilanda. Sömu reglur eiga að gilda um allar ferjur og rekstraraðila sem sigla undir sömu skilyrðum burtséð frá fánaríki eða þjóðerni rekstraraðilans. Í framkvæmd má segja að þessi tilskipun kveði á um nýtt stjórnunarkerfi fyrir ferjur í viðbót við núverandi skráningarkerfi og hafnarríkiseftirlit. Til að auka eftirlit gestaríkis til viðbótar við eftirlit fánaríkis og þess ríkis sem siglt er til er gert ráð fyrir nýjum þætti til að auka öryggi sem snýr að rétti gestaríkis til að taka þátt í rannsóknum sjóslysa. Óviðunandi hefur verið talið að fánaríki hafi einokun á rannsóknum sjóslysa. Þessi er ein í röðinni af tilskipunum um öryggi farþegaskipa sem settar hafa verið fram frá 1994 eða síðan Estóníu slysið varð og fjalla þær um menntun og þjálfun skipverja, flokkun ferja, hafnarríkiseftirlit og reglum um skipsbúnað. Norðmenn áttu í meiri vandræðum með þetta en Ísland og telja þetta ganga þvert á alþjóðlegar reglur á þessu sviði. Tilskipunin á við um farþegaskip í reglubundnum ferðum á hafsvæði A, þ.e. meira en 20 mílum frá ströndinni.
Á ekki við um íslensk farþegaskip í innanlandssiglingum því þau sigla öll innan við þessa línu. Gerðin hefur í för með sér aukaskoðanir til viðbótar við þær reglubundnu. Það mun auka kostnað verulega og Ísland hefur talið þetta í mótsögn við markmið reglugerðar ráðsins 3051/95 sem kveður á um að rekstraraðilar sjálfir taki meiri ábyrgð á eftirliti. 
302L0084 Tilskipun EES 2002/84/EB, 9. gr.  um breytingu á tilskipunum um siglingaöryggi og varnir gegn mengun frá skipum
Innleiðing:  Reglugerð um skoðanir ekjuferja og háhraðafarþegaskipa í millilandasiglingum 743/2001, sbr. 595/2004. Lög um eftirlit með skipum, nr. 47/2003.

56cb. Stöðugleiki ekjufarþegaskipa
Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2005/12/EB frá 18. febrúar 2005 um breytingu á viðauka I og II við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/25/EB 14. apríl 2003 um sérkröfur um stöðugleika ekjufarþegaskipa.
Birt í Stjórnartíðindum ESB 19. febrúar 2005
Ákvörðun EES-nefndar 121/2005EES viðbætir 66/2005, bls. 16
Reglugerð um breytingu á reglugerð, nr. 551/2005, um sérkröfur um stöðugleika ekjufarþegaskipa, nr. 879/2006.
Sjá frétt á vef Siglingastofnunar 26. október 2006

56d. Farþega og flutningaskip: skipsbúnaður.
396L0098  Tilskipun ráðsins 96/98/EB frá 20. desember 1996 um búnað um borð í skipum.
Efni:  Tók gildi innan ESB 1. janúar 1999. Gildir um framleiðendur og seljendur skipsbúnaðar sem nota á um borð í skipum sem alþjóðasamningar taka til og er markmið hennar að koma í veg fyrir að alþjóðlegir staðlar séu teknir upp með ólíkum hætti og eiga að koma í veg fyrir óþarfan kostnað og stjórnsýslumeðferð vegna viðurkenningar á búnaði. Markmiðið er að bæta öryggi á sjó og koma í veg fyrir mengun sjávar með því að beita á einsleitan hátt viðeigandi alþjóðlegum gerningum varðandi skipsbúnað. 
398L0085  Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 98/85/EB frá 11. nóvember 1998 um breytingu á tilskipun ráðsins 96/98/EB frá 20. desember 1996 um búnað um borð í skipum.
Efni:  Breytingum sem orðið hafa á SOLAS samningnum um öryggi mannslífa á hafinu og varðar fjarskiptabúnað er bætt inn í tilskipunina. 
32001L0053 Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2001/53/EB frá 10. júlí 2001 um breytingu á tilskipun ráðsins 96/98/EB um búnað um borð í skipum.
Efni: Breytingum sem orðið hafa á SOLAS samningnum um öryggi mannslífa á hafinu og varðar fjarskiptabúnað er bætt inn í tilskipunina. 
32002L0075 Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2002/75/EB frá 2. september 2002 um breytingu á tilskipun ráðsins 96/98 um skipsbúnað
Birt í Stjórnartíðindum 23. september 2002. Birt í EES-viðbæti 16/2004 bls. 198.
Ákvörðun EES-nefndar 45/2003, - birt í EES-viðbæti 39/2003, bls. 10.
Tilskipun EES 2002/84, 5. gr.
Innleiðing:  Reglugerð um skipsbúnað, nr. 589/2004 - Lög um eftirlit með skipum, nr. 47/2003.
Sjá frétt á vef Siglingastofnunar 22. júlí 2004
Tilkynntir aðilar (notified body) skv. tilskipun 96/98  http://www.mared.org/

56e.  Farþegaskip; talning og skráning farþega.
398L0041  Tilskipun ráðsins 98/41/EB frá 18. júní 1998 um skráningu farþega um borð í farþegaskipum sem sigla til eða frá höfnum innan aðildarríkja Evrópusambandsins.
Efni: Tók gildi innan ESB 1. janúar 1999. Kveður á um að sett verði á fót kerfi til skrá farþega á öllum skipum með fleiri en 12 farþega og sigla á milli hafna þar sem vegalengd er lengri en 20 sjómílur og á hafsvæði þar sem ekki nýtur skjóls af landi. Tilgangur hennar er að tryggja öryggi og björgun farþega og áhafnar á farþegaskipum sem sigla til eða frá höfnum í aðildarríkjum á EES svæðinu og tryggja að leit og björgun fari fram á sem skilvirkastan hátt. Tilskipunin kveður á um að áður en farþegaskip leggur úr höfn óháð stærð skips og farsviði sem og lengd siglingar skipsins, þá skuli fara fram kerfisbundin talning farþega og niðurstöður talningar skuli hafa borist til skipstjóra fyrir brottför skips, sem og til sérstaks tilnefnds starfsmanns í landi. Ef lengra en 20 sjómílur er til hafnarinnar sem sigla á til skal skrá nafn farþega, kyn farþega og hvort um er að ræða fullorðinn eða barn og hvort farþegi þarfnast sérstakrar aðstoðar í neyðartilfellum. Slíkum upplýsingum skal safna saman fyrir brottför skipsins og tilkynna innan 30 mínútna frá brottför skipsins til skráningarstöðvar í landi.  Tilskipun EES 2002/84/EB, 8. gr.
Innleiðing:  Reglugerð um skráningu einstaklinga sem sigla með farþegaskipum,  nr. 659/2000, sbr. rg. 597/2004. Lög um eftirlit með skipum, nr. 47/2003.

56f. Farþegaskip; smíði og búnaður.
398L0018  Tilskipun ráðsins 98/18/EB frá 17. mars 1998 um öryggisreglur og staðla  fyrir farþegaskip.
Efni: Tók gildi innan ESB 1. júlí 1998. Gildir um öll farþegaskip með fleiri en 12 farþega, óháð fánaríki, sem eru í innanlandssiglingum, þ.e. nýrra farþegaskipa, eldri farþegaskipa 24 metrar og lengri og háhraðafarþegafara. Fjallar um öryggi farþegaskipa og hefur að geyma ítarlegar reglur um smíði og búnað þeirra. 
Innleiðing: Reglugerð um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum, nr. 666/2001, 983/2004
Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2002/25/EB frá 5. mars 2002 um breytingu á tilskipun ráðsins 98/18/EB um öryggisreglur og staðla fyrir farþegaskip.
Birt í Stjórnartíðindum ESB, 15. apríl 2002.
Ákvörðun EES-nefndar 177/2003   
Innleiðing:   Reglugerð um breytingu á ýmsum reglugerðum vegna rg. nr. 666/2001 um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum og reglugerðar nr. 26/2000 um öryggi fiskiskipa sem eru 24 metrar að lengd eða lengri, 667/2001. Felld brott með reglugerð nr. 122/2004
Lög um eftirlit með skipum nr. 47/2003 með síðari breytingum. 
Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2003/75/EB frá 29. júlí 2003 um breytingu viðauka I á tilskipun ráðsins 98/18/EB um öryggisreglur og staðla fyrir farþegaskip.
Birt í Stjórnartíðindum ESB, 30. júlí 2003.
Ákvörðun EES-nefndar 179/2003 – EES viðbætir 15/2004, bls. 18.
Innleiðing: Rg. um br. á rg. um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum nr. 666/2001, með  síðari breytingum, nr. 17/2005
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/24/EB frá 14. apríl 2003 um breytingu á tilskipun ráðsins 98/18/EB um öryggisreglur og staðla fyrir farþegaskip.
Birt í Stjórnartíðindum ESB, 17. maí 2003
Ákvörðun EES-nefndar 158/2003 – EES viðbætir 7/2004, bls. 38.
Innleiðing: Reglugerð um breytingu á reglugerð um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum, nr. 666/2001, nr. 423/2005.
Sjá frétt á vef Siglingastofnunar 18. maí 2005

56g.  Fiskiskip; smíði og búnaður.
397L0070  Tilskipun ráðsins 97/70/EB frá 11. desember 1997 um að koma á samræmdum reglum um öryggi fiskiskipa sem eru 24 metrar að lengd eða meira.
Efni:  Tók gildi innan ESB 1. janúar 1999. Tilskipunin fjallar um öryggi fiskiskipa sem  eru 24 metrar að lengd og lengri og byggir á Torremolinos bókuninni frá 1993 við Torremolinos alþjóðasamþykktina um öryggi fiskiskipa frá 1977, auk evrópskra sérákvæða. Tilskipun 97/70 kom til framkvæmda innan ESB 1. janúar 1999. Bæði Ísland og Noregur áttu í vandkvæðum með að taka upp þessa gerð. Norðmenn vegna samskipta við þriðju ríki og Ísland vegna aukinna öryggiskrafna. Ísland óskaði eftir því að sett yrði inn setning í ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar um að Ísland geti sett sérkröfur til íslenskra skipa, þar sem Ísland vill tryggja að slíkt sé heimilt og til áréttingar að slíkt verði áfram gert af íslenskum stjórnvöldum. Framkvæmdastjórnin var ekki sátt við það og taldi slíkt óþarft, þar sem sá réttur sé tryggður í 8. gr. Torremolinos samningsins og í hafréttarsamningi SÞ. Fallist var á þessa ósk Íslands. 
399L0019 Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 1999/19 frá 18. mars 1999 um breytingu á
tilskipun ráðsins 97/70/EB frá 11. desember 1997 um að koma á samræmdum reglum um öryggi fiskiskipa sem eru 24 metrar að lengd eða meira.
Efni: Tók gildi innan ESB 31. maí 2000. Með þessari breytingu er stjórnvöldum gefin heimild til að veita fiskiskipum sem eru 24-45 metrar að lengd og eru eingöngu á hafsvæði A1, undanþágu frá tilgreindum ákvæðum í IX. kafla um EPIRB-neyðarbaujur, að því tilskildu að skipin hafi metrabylgjustöð með stafrænu valkalli (DSC) til viðbótar þeirri sem fyrir er. Hérlendis er ekki gert ráð fyrir að í strandarstöðvum verði búnaður fyrir stafrænt valkall á metrabylgju og því ekkert A1 hafsvæði, aðeins A2.
302L0035 Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2002/35/EB frá 25. apríl 2002 um breytingu á tilskipun ráðsins 97//0/EB um að setja samræmda reglur um öryggi fiskiskipa sem eru 24 metrar að lengd og lengri.
Birt í Stjórnartíðindum ESB, 27. apríl 2002. 
Ákvörðun EES-nefndar 36/2003, EES-viðbætir 29/2003, bls. 27
2002/84/EB Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/84/EB frá 5. nóvember 2002 um breytingu á tilskipunum um öryggi í siglingum og varnir gegn mengun sjávar frá skipum (6. gr.)
Upplýsingasíða ESB
Innleiðing: Reglugerð um öryggi fiskiskipa sem eru 15 metrar eða lengri að mestu lengd, nr. 122/2004. Lög um eftirlit með skipum, nr. 47/2003. Lög um fjarskipti nr. 81/2003, 63. gr.
Sjá frétt á vef Siglingastofnunar 19. febrúar 2004

56h. Flutningaskip og farþegaskip: vinnutími sjómanna á skipum utan EES.
399L0095 Tilskipun Evrópuþingsins og Ráðsins 1999/95/EB frá 13. desember 1999 um framkvæmd ákvæða um vinnutíma sjómanna á skipum sem fara um hafnir í bandalaginu.  Ákvörðun EES nefndar 94/2000.
Innleiðing: Þingsályktun frá Alþingi, samþykkt 23. apríl 2001.  Lög um br. á lagaákvæðum um vinnutíma sjómanna, 31/2003.  Reglugerð um vinnu- og hvíldartíma skipverja á farþegaskipum og flutningaskipum,  680/2004, sbr. 1019/2006.
Tilmæli framkvæmdastjórnarinnar 1999/130/EB frá 18. nóvember 1998 um fullgildingu á ILO-samningi nr. 180 um vinnutíma sjómanna og mönnun skipa og fullgildingu á 1996 bókuninni við kaupskipasamþykktina frá 1976.
Birt í Stjórnartíðindum ESB, 17. febrúar 1999
Listi yfir ríki sem hafa fullgilt ILO samning nr. 180
Listi yfir ríki sem hafa fullgilt 1996 bókunina

56i. Skip og móttaka á úrgangi og farmleifum frá skipum í höfnum.
300L0059 Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/59/EB frá 27. nóvember 2000 um aðstöðu í höfnum til að taka á móti úrgangi skipa og farmleifum.
Birt í Stjórnartíðindum ESB, 28. desember 2000.  
Upplýsingasíða ESB
Ákvörðun EES-nefndar 77/2001Birt í EES viðbæti 44/2001, bls. 22.
Innleiðing: Reglugerð um móttöku á úrgangi frá skipum, nr. 792/2004.
Lög um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004

56j. Farþegaskip og flutningaskip; menntun og þjálfun áhafnar.
301L0025  Tilskipun ráðsins 2001/25/EB frá 4. apríl 1994 um lágmarksþjálfun sjómanna.
Efni: Tók gildi innan ESB 28. maí 2001. Sameinar ákvæði tilskipunar um þetta efni sem áður giltu, þ.e. tilskipanir 394L0058 og 398L0035. Gildir um farþegaskip og flutningaskip. Miðar að því að innleiða í löggjöf ESB STCW alþjóðasamninginn frá 1978 sem Ísland er aðili að.
Innleiðing: Rg. um áhafnir íslenskra farþega og flutningaskipa 416/2003, m. síðari br.
Rg. um vaktstöður um borð í íslenskum farþega- og flutningaskipum, 599/2001.
Tilskipun EES 2002/84/EB, 11. gr.  Lög um áhafnir íslenskra farþega- og flutningaskipa, 76/2001.  Rg. um atvinnuréttindi skipstjórnar- og vélstjórnarmanna, nr. 118/1996, sbr. br.  207/1998. Rg. um sjón, heyrn og heilbrigði vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum og undirmanna á kaupskipum, 304/1993, sbr. br. 385/1999.  Felldar brott með reglugerð nr. 175/2008
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/103/EB frá 17. nóvember 2003 um breytingu á tilskipun 2001/25/EB um lágmarksþjálfun sjómanna.
Birt í Stjórnartíðindum ESB, 13. desember 2003.
Upplýsingasíða ESB - Samantekt ESB
Upplýsingasíða EMSA 
Ákvörðun EES-nefndar 107/2004 – EES viðbætir 65/2004, bls. 27
Innleiðing: Reglugerð um breytingu á reglugerð um áhafnir íslenskra farþega- og flutningaskipa, nr. 416/2003, nr. 430/2005
Sjá frétt á vef Siglingastofnunar 20. maí 2005 
Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2005/23/EB frá 8. mars 2005 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/25/EC um lágmarksþjálfun sjómanna.
Birt í Stjórnartíðindum ESB, 9. mars 2005
Ákvörðun EES-nefndar 150/2005 – EES viðbætir 10/2006, bls. 22
Innleiðing: Reglugerð um breytingu á reglugerð um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, nr. 416/2003, með síðari br.

 

56k. Flutningaskip; lestun og losun
301L0096 Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/96/EB frá 4. desember 2001 um samræmdar kröfur og reglur um lestun og losun búlkaskipa.
Birt í Stjórnartíðindum ESB 16. janúar 2002.
Upplýsingasíða ESB
Birt í EES viðbæti 6/2003, bls 147.
Ákvörðun EES-nefndar 56/2002.  
Tilskipun EES 2002/84/EB, 12.gr.
Sjá frétt á vef Siglingastofnunar 10. mars 2004
Innleiðing: Reglugerð um samræmdar kröfur og aðferðir að því er varða örugga lestun og losun  búlkaskipa, 204/2004.

56l. Flutningaskip og farþegaskip
302L0006 Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/6/EB frá 18. febrúar 2002 um formsatriði við skýrslugjöf að því er varðar skip sem koma í og/eða láta úr höfn í aðildarríkjum bandalagsins.
Birt í Stjórnartíðindum ESB, 9. mars 2002. Birt í EES viðbæti 49/2003, bls. 272. 
Upplýsingasíða ESB
Ákvörðun EES-nefndar 106/2002.  
Innleiðing: Lög um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003.
Reglugerð um formsatriði við skýrslugjöf að því er varðar skip sem koma í  og/eða láta úr höfn í ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, 869/2004
Sjá frétt á vef Siglingastofnunar 11. nóvember 2004.

56m. Flutningaskip: krafa um tvöfaldan byrðing
302R0417 Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 417/2002 frá 18. febrúar 2002 um að flýta innleiðingu á kröfum um tvöfaldan byrðing eða sambærilega hönnun fyrir olíuflutningaskip með einföldum byrðingi og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 2978/94.
Birt í Stjórnartíðindum ESB, 7. mars 2002.
Upplýsingasíða ESB
Ákvörðun EES nefndar 132/2002. - Birt í EES viðbæti, 61/2002, bls. 26. 
Innleiðing:  Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um hönnun  olíuflutningaskipa, 310/2003. Felld brott með reglugerð nr. 1110/2008
Reglugerð (COSS) nr. 594/2004, sbr. 11. gr. rg. EB nr. 2099/2002
303R1726 Rg. Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr.1726/2003 frá 22. júlí 2003 um breytingu á reglugerð nr. 417/2002 um að flýta innleiðingu á kröfum um tvöfaldan byrðing eða sambærilega hönnun fyrir olíuflutningaskip með einföldum byrðingi.
Birt í Stjórnartíðindum ESB, 1. október 2003.
Upplýsingasíða ESB
Ákvörðun EES-nefndar 77/2004 – EES viðbætir 59/2004, bls. 12.
Úttekt á vegum ESB frá júní 2004. 
Innleiðing:  Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 310/2003 um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um hönnun olíuflutningaskipa, nr. 507/2005. Felld brott með reglugerð nr. 1110/2008
Sjá frétt á vef Siglingastofnunar 19. maí 2005
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2172/2004 frá 17. desember 2004 um breytingu á rg. nr. 417/2002 um að flýta innleiðingu á kröfum um tvöfaldan byrðing eða sambærilega hönnun fyrir olíuflutningaskip með einföldum byrðingi.
Birt í Stjórnartíðindum ESB, 18. desember 2004
Ákvörðun EES-nefndar 68/2005 – EES viðbætir xx/2005, bls. xxx
Innleiðing: Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 310/2003 um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um hönnun olíuflutningaskipa, nr. 388/2006. Felldar brott með reglugerð nr. 1110/2008
307R0457 Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 457/2007 frá 25. apríl 2007 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 417/2002 um að flýta innleiðingu á kröfum um tvöfaldan byrðing eða sambærilega hönnun fyrir olíuflutningaskip með einföldum byrðingi.
Birt í Stjórnartíðindum ESB 30. apríl 2007, L 113
Ákvörðun EES-nefndar 119/2007 – EES-viðbætir 9/2008, bls. 8
Innleiðing: Rg. um hönnun olíuflutningaskipa nr. 1110/2008.

56n. Skip; nefnd EB um öryggi á höfunum og varnir gegn mengun frá skipum.
302R2099 Reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2099/2002 frá 5. nóvember 2002 um stofnun nefndar um öruggar siglingar og varnir gegn mengun og breytingar á reglugerðum um öryggi í siglingum og varnir gegn mengun frá skipum   Ákvörðun EES-nefndar 53/2003, - EES viðbætir 39/2003, bls. 19
Innleiðing: Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um að koma á fót nefnd um öryggi á höfunum og varnir gegn mengun frá skipum (COSS) og um breytingu á reglugerðum um siglingaöryggi og varnir gegn mengun frá skipum, 594/2004.
302L0084 Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/84/EB frá 5. nóvember 2002 um breytingar á tilskipunum um öryggi í siglingum og varnir gegn mengun sjávar frá skipum.
Ákvörðun EES-nefndar 178/2003 – EES viðbætir 15/2004, bls. 19.
Sjá frétt á vef Siglingastofnunar 5. ágúst 2004 
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/84/EB frá 5. nóvember 2002 um breytingu á tilskipunum um siglingaöryggi og varnir gegn mengun frá skipum er nokkurs konar bandormur þar sem breytt er ýmsum tilskipunum í framhaldi af reglugerð EB nr. 2099/2002 um að koma á fót nefnd um öryggi á höfunum og varnir gegn mengun frá skipum. Sú nefnd leysir af hólmi ýmsar aðrar nefndir á sviði siglingaöryggismála skv. öðrum tilskipunum EB. Tilskipunin kveður á um að taka eigi mið af ákvæðum alþjóðasamninga eins og þeir eru á hverjum tíma og að í stað starfandi nefnda skv. sérhverri tilskipun komi „Committee on
Safe Seas and the Prevention of Pollution from Ships (COSS)“. Kveðið er á um að aðildarríki þurfa að vera búin að innleiða tilskipunina fyrir 23. nóvember 2003.
304R0415 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 415/2004 frá 5. mars 2004 um breytingu á reglugerð 2099/2002 um stofnun nefndar um öruggar siglingar og varnir gegn mengun og breytingar á reglugerðum um öryggi í siglingum og varnir gegn mengun frá skipum. Ákvörðun EES-nefndar 108/2004 – EES viðbætir 65/2004, bls. 28
Innleiðing: b-liður 2. gr. rg. nr. 652/2009 um nefnd Evrópusambandsins um öryggi á höfunum og varnir gegn mengun frá skipum.
Sjá frétt á vef Siglingastofnunar 24. júní 2005
32007R0093 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 93/2007 frá 30. janúar 2007 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2099/2002  um stofnun nefndar um öruggar siglingar og varnir gegn mengun og breytingar á reglugerðum um öryggi í siglingum og varnir gegn mengun frá skipum (COSS)

Birt í Stjórnartíðindum ESB 31. janúar 2007.

Ákvörðun EES-nefndar 165/2007 - EES viðbætir 26/2008, bls. 26.
Innleiðing: Reglugerð nr. 652/2009 um nefnd Evrópusambandsins um öryggi á höfnum og varnir gegn megnun frá skipum.

56o. Skip; Siglingaöryggisstofnun Evrópu.
302R1406 Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr.1406/2002 frá 27. júní 2002 um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu.  
Ákvörðun EES-nefndar 81/2003 – birt í EES viðbæti 51/2003, bls. 21
Innleiðing: Lög um breytingu á lögum um Siglingastofnun Íslands nr. 29/2003 (frv.)
Rg. um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu, 739/2004. Felld brott með reglugerð nr. 1138/2007
303R1644 Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1644/2003 frá 22. júlí 2003 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1406/2002 um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu.
Upplýsingasíða ESB
Ákvörðun EES-nefndar 40/2004 – EES viðbætir 43/2004, bls. 8
Innleiðing: Reglugerð um breytingu á reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um stofnun Siglingaöryggisstofnun Evrópu, nr. 739/2004, nr. 581/2005. Felld brott með reglugerð nr. 1138/2007
Sjá frétt á vef Siglingastofnunar 24. júní 2005
304R0724 Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 724/2004 frá 31. mars 2004 um breytingu á reglugerð nr. 1406/2002 um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu.
Birt í Stjórnartíðindum ESB 6. ágúst 2003
Upplýsingasíða ESB
Ákvörðun EES-nefndar 152/2004EES viðbætir 20/2005, bls. 19
Reglugerð um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu, 1138/2007
306R1891 Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1891/2006 frá 18. desember 2006 um fjármögnun til margra ára á aðgerðum Siglingaöryggisstofnunar Evrópu til að bregðast við mengun frá skipum og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1406/2002.
Birt í Stjórnartíðindum ESB 29. desember 2006
Upplýsingasíða ESB
Ákvörðun EES-nefndar 52/2007 – EES viðbætir 48/2007, bls. 8
Innleiðing: Reglugerð um breytingu á reglugerð um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu nr. 1138/2007, nr. 521/2008

 

56p. Skip; lífræn tinsambönd
303R0782 Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 782/2003 frá 14. apríl 2003 um bann við því að nota lífræn tinsambönd á skip.
Upplýsingasíða ESB. 
Frétt á vefsíðu Siglingastofnunar 15. maí 2003.
Ákvörðun EES-nefndar 159/2003 – EES viðbætir 7/2004, bls. 39.  
Innleiðing: Rg. um bann við notkun gróðurhindrandi efna sem í eru kvikasilfurssambönd, arsensambönd og lífræn tinsambönd, nr. 619/2000, sbr. 878/2002  Felld brott með rg. nr. 750/2008. Rg. um takmörkun á notkun skaðlegra gróðurhindrandi efna og/eða búnaðar  á skip, nr. 824/2005
Sjá frétt á vef Siglingastofnunar 19. september 2005.

 

56q. Flutningur farþegaskipa og flutningaskipa milli skipaskráa innan EES
304R0789 Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 789/2004 frá 21. apríl 2004 um færslu flutningaskipa og farþegaskipa á milli skipaskráa innan EB og brottfall reglugerðar ráðsins nr. 613/91.
Upplýsingasíða ESB
EFTA Comment frá 18. nóvember 2003
Frétt á heimasíðu Siglingastofnunar 8. ágúst 2003
Ákvörðun EES-nefndar 153/2004 – EES-viðbætir 20/2005, bls. 20
Innleiðing: Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um tilfærslu flutninga- og farþegaskipa milli skipaskráa innan sambandsins, 698/2006.
Sjá frétt á vef Siglingastofnunar 16. ágúst 2006.

 

56r. Skip. Úttektir ESB á siglingavernd
305R0884 Reglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (EB) nr. 884/2005 frá 10. júní 2005 um verklagsreglur við framkvæmd skoðana framkvæmdarstjórnarinnar á sviði siglingaverndar.

Birt í Stjórnartíðindum ESB 11. júní 2005

Ákvörðun EES-nefndar 34/2006 - EES viðbætir 28/2006, bls. 20

Innleiðing: Rg. um breytingu á reglugerð nr. 474/2007 um vernd skipa og hafnaraðstöðu nr. 104/2008, sbr.  265/2008
32008R0324 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 324/2008 frá 9. apríl 2008 um endurskoðaðar verklagsreglur við framkvæmd skoðana framkvæmdastjórnarinnar á sviði siglingaverndar.

Birt í Stjórnartíðindum ESB L 98, 10. apríl 2008, bls. 5

Ákvörðun EES-nefndar 116/2008 - EES viðbætir 79/2008, bls. 15

Innleiðing: Reglugerð nr. 920/2009 um breytingu á reglugerð nr. 474/2007 um vernd skipa og hafnaraðstöðu.

 

56s. Lágmarksþjálfun Sjómanna - viðurkenning skírteina útgefnum af ESB-ríkjum

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/45/EB frá 7. september 2005 um gagnkvæma viðurkenningu á skírteinum sjómanna sem aðildarríkin gefa út og um breytingu á tilskipun 2001/25/EB.
Birt í Stjórnartíðindum ESB 30. september 2005
Upplýsingasíða ESB
Ákvörðun EES-nefndar 35/2006 - EES viðbætir 28/2006, bls. 21
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 416/2003 um áhafnir íslenskra farþegar- flugningaskipa 438/2008

Innleiðing: Rg. um breytingu á reglugerð, nr. 416/2003, um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, nr. 438/2008.

 

56t. Hafnarvernd

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/65/EB frá 26. október 2005 um að efla hafnavernd. 
Birt í Stjórnartíðindum ESB 25. nóvember 2005
Upplýsingasíða ESB
Ákvörðun EES-nefndar 65/2006 - EES viðbætir 44/2006, bls. 13
Innleiðing: Reglugerð um framkvæmd siglingaverndar, 265/2008

 

56u. Innleiðing ISM-kóðans

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 336/2006 frá 15. febrúar 2006 um að hrinda í framkvæmd ákvæðum alþjóðlega kóðans um öryggisstjórnun skipa innan Bandalagsins og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 3051/95
Birt í Stjórnartíðindum ESB 4. mars 2006
Upplýsingasíða ESB
EFTA Comment frá 1. apríl 2004
Ákvörðun EES-nefndar 131/2006 - EES-viðbætir 64/2006, bls. 3
Innleiðing: Rg. um öryggisstjórnun skipa nr. 337/2009. Birt í heild sinni í EES-viðbæti 77/2008, bls. 20
32008R0540 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 540/2008 frá 16. júní 2008 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 336/2006 um að hrinda í framkvæmd ákvæðum alþjóðlega kóðans um öryggisstjórnun skipa innan Bandalagsins að því er varðar snið eyðublaða.

Birt í Stjórnartíðindum ESB L 157, 17. júní 2008, bls. 15

Ákvörðun EES-nefndar 117/2008EES viðbætir 79/2008, bls. 17

Innleiðing: Lög nr. 39/2008 um breytingu á lögum nr. 76/2001 um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa. (9. gr. A)


57.  Flutningaskip; samkeppnismál
386R4057  Reglugerð ráðsins nr. 4057/86 frá 22. desember 1986 um óréttmæta verðlagningu
í flutningum á sjó.
Efni: Reglugerðin fjallar um viðbrögð og aðgerðir gegn undirboðum í kaupskipaútgerð, s.s. með styrkjum, ívilnunum, niðurgreiðslum, hindrunum o.fl. frá stjórnvöldum í ríkjum utan ESB/EES, sem skapa þarlendum útgerðum betri samkeppnisstöðu og
gera þeim mögulegt að bjóða lægri flutningsgjöld en ella.
Innleiðing: Augl. um gildistöku ákvæða er leiða af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið vegna flutninga á sjó, 572/1993. Siglingalög, 34/1985.

58.  Flutningaskip; samkeppnismál
386R4058  Reglugerð ráðsins (EBE) nr. 4058/86 frá 22. desember 1986 um samræmdar aðgerðir til að tryggja rétt til að keppa um farmflutninga í úthafssiglingum.
Efni: Reglugerðin veitir vernd gegn einhliða aðgerðum þriðju ríkja til að takmarka frjálsan aðgang að förmum í sjóflutningum. Sérhvert aðildarríki getur krafist samræmdra mótaðgerða allra aðildarríkja gegn takmörkunum, sem það verður fyrir.
Innleiðing:  Augl. um gildistökuákvæða er leiða af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið vegna flutninga á sjó, 572/1993. Siglingalög, 34/1985.

59. Flutningaskip; samkeppnismál
383D0573  Ákvörðun ráðsins 83/573/EBE frá 26. október 1983 um gagnaðgerðir á sviði alþjóðlegra kaupsiglinga.
Efni: Ákvörðunin heimilar einstökum aðildarríkjum að grípa til einhliða gagnaðgerða, t.d. á grundvelli upplýsinga sem safnað hefur verið skv. ákvörðun 79/4 og síðari framlengingum. Samkvæmt ákvörðuninni ber aðildarríki, sem hefur gripið til eða ætlar að grípa til slíkra gagnaðgerða gegn þriðja ríki í sjóflutningum, að hafa samráð við önnur aðildarríki og framkvæmdanefndina í samræmi við samráðsreglur ákvörðunar 77/587.
Innleiðing: Auglýsing um gildistöku ákvæða er leiða af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið vegna flutninga á sjó, 572/1993. Siglingalög, 34/1985.

59a.  Skip; leiðsaga og umferðarstjórnun
392D0143  Ákvörðun ráðsins 92/143/EBE frá 25. febrúar 1992 um þráðlaust leiðsögukerfi fyrir Evrópu.
Efni: Þessi ákvörðun fjallar um og tekur til þeirra aðildarríkja sem eru eða vilja gerast aðilar að svæðasamþykktum um Loran-C.
Innleiðing:   Augl. um gildistöku ákvæða er leiða af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið vegna flutninga á sjó, 442/1994. Siglingalög, 34/1985.

59b.  Farþegaskip; öryggismál
394Y1231(08)  Ályktun ráðsins 94/C 379/05 frá 22. desember 1994 um öryggi á ekjufarþegaferjum.
Innleiðing: Siglingalög, 34/1985

Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi