Endurskoðun
Siglingastofnun Íslands vinnur tillögu að áætlun um siglingamál, sbr. lög nr. 71/2002, um samgönguáætlun. Þingsályktun um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2005-2008 var samþykkt á Alþingi 11. maí 2005 og kemur í stað þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2003-2006. Áætlunin skiptist í flugmálaáætlun, siglingamálaáætlun og vegáætlun. Í henni skal gerð grein fyrir fjáröflun og sundurliða útgjöld eftir einstökum framkvæmdum, rekstri, þjónustu og viðhaldi eftir því sem við á. Áætlunin skal endurskoðuð á tveggja ára fresti og er hafin undirbúningur að gerð nýrrar áætlunar tímabilið 2007-2010. Hafnar- og sveitarstjórnum hefur verið sent bréf þar sem gefinn er kostur á að senda inn óskir fyrir næsta áætlunartímabil.
Tólf ára samgönguáætlun fyrir árin 2003-2014 verður endurskoðuð samhliða endurskoðun fjögurra ára samgönguáætlunarinnar fyrir árin 2005-2008.
Eyðublöð
Vöruflutningar 2005
Umsókn um framlag 2007-2010
Skýrsla um heimaflota 2005