Starfsmannastefna
VIÐAUKI I
STARFSMANNASTEFNA SIGLINGASTOFNUNAR ÍSLANDS
- Siglingastofnun stefnir að því að hafa jafnan á að skipa hæfum og áhugasömum starfsmönnum svo tryggja megi nauðsynlegt frumkvæði í störfum og góða þjónustu.
- Stofnunin vill tryggja starfsmönnum bestu starfsskilyrði og möguleika á að vaxa og dafna í starfi jafnframt því að skapa þeim aðstæður til að samræma starf og fjölskyldulíf.
- Starfsmannastefnunni er ætlað að vera til hvatningar og upplýsingar fyrir alla starfsmenn og lýsa þeim vilja að stofnunin sé góður vinnustaður þar sem gott starf er unnið af áhugasömu, samstilltu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis.
- Í stjórnunarstefnu Siglingastofnunar felst jákvætt viðhorf til starfsmanna og málefna þeirra. Mikilvægi þessa endurspeglast í sérstakri áherslu yfirstjórnar á málaflokkinn og virkri þátttöku starfsmanna í ákvarðanatöku og stefnumótun.
- Í umboði siglingamálastjóra fer skrifstofusvið með daglega stjórnun og mótun reglna um starfsmannamál. Sviðið samræmir einnig vinnu annarra sem koma að starfsmannamálum innan stofnunarinnar.
- Yfirmenn hafa þá skyldu að hafa í heiðri starfsmannastefnuna og sjá til þess að farið sé að reglum og fyrirmælum bæði með tilliti til hagsmuna stofnunarinnar og starfsmannsins.
- Löggjöf á hverjum tíma, reglur, fyrirmæli og kjarasamningar mynda ramma um ákvarðanir um starfsmannamál. Það er stefna Siglingastofnunar að virða í hvívetna lagalegar og samningsbundnar
skyldur sínar og fara eftir þeim reglum og kjarasamningum sem gilda hverju sinni. - Til framgangs stefnunar setur siglingamálastjóri þær reglur sem nauðsynlegar eru og skulu þær endurspegla stefnu þessa.
STARFSMANNASTEFNA SIGLINGASTOFNUNAR ÍSLANDS
Nánari umfjöllun
Ráðningar
Þegar starf losnar eða nauðsynlegt er að stofna nýtt starf er mikilvægt að gengið sé frá málinu hratt og skipulega. Auglýsa skal laus störf eftir gildandi reglum í þeim tilgangi að sem flestum hæfileikaríkum einstaklingum gefist færi á að leggja inn umsókn. Ákvörðun um ráðningu skal ávallt vel ígrunduð og tekin með málefnalegum hætti. Ráða skal hæfasta umsækjanda sem völ er á hverju sinni og gæta fyllsta jafnréttis við ráðninguna. Almennt skal stefnt að ótímabundnum ráðningum, en tímabundnar aðeins viðhafðar þegar við á eðli málsins samkvæmt. Þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir skal frá henni gengið með formlegum hætti. Nýtt starfsfólk skal fá almenna kynningu á starfsemi stofnunarinnar og þá starfsfræðslu og leiðsögn sem við á hverju sinni.
Starfslýsingar
Starfslýsingar skulu ávallt vera til fyrir öll störf hjá Siglingastofnun. Tilgangur þess er að starfsmenn viti aðalatriði þess sem ætlast er til af þeim með tilliti til árangurs og ábyrgðar. Ef breytingar verða á starfinu skal lýsingin endurskoðuð þannig að hún gefi jafnan rétta mynd af starfinu. Eðli málsins samkvæmt getur starfslýsing aldrei verið tæmandi talning og ber því starfsmönnum að sinna þeim verkum sem yfirmaður felur þeim á hverjum tíma.
Viðvera og vinnutími
Vinnutími skal vera sveigjanlegur eftir því sem unnt er og gæta skal hófs í lengd vinnudags og þannig haft að leiðarljósi að viðvera starfsmanna taki mið af því að þeir geti samræmt kröfur starfs- og fjölskylduábyrgðar eins og kostur er. Takmarka skal óreglulegan vinnutíma svo sem kostur er og bætt úr óæskilegum áhrifum hans eftir því sem mögulegt er og kjarasamningar kveða á um. Lögð er áhersla á að starfsmenn séu stundvísir og við störf á þeim tíma sem um er samið. Yfirmenn skulu fylgjast með mætingum, fjarveru á vinnutíma og brotthvarfi af vinnustað áður en vinnudegi lýkur og kanna ástæður fyrir slíku og lagfæra.
Kjaramál
Um launakjör starfsmanna fer eftir ákvæðum gildandi kjarasamninga eins og þeir eru á hverjum tíma. Ákvarðanir í þessu efni skulu að öðru leyti taka mið af því markmiði að Siglingastofnun geti haft á að skipa starfsfólki með þá reynslu og færni sem hún þarf á að halda hverju sinni. Almennt skulu ákvarðanir um launakjör taka mið af ábyrgð, frammistöðu og árangri í starfi. Þær skulu vera gagnsæjar og málefnalegar.
Símenntun
Stefnt er að því að efla og styrkja símenntun starfsmanna þannig að þeir geti fengið þá fræðslu, þjálfun og endurmenntun sem þeim er nauðsynleg til að sinna starfi sínu og vinna að markmiðum stofnunarinnar. Markmiðið er að starfsmenn geti með sóma tekist á við núverandi verkefni, sem og ný og breytt, í starfi sínu og séu hæfari til að mæta breytingum, s.s. að skipta um starfsvettvang. Mikilvægt er að þörfum mismunandi starfshópa fyrir fræðslu, þjálfun og endurmenntun verði sinnt á markvissan hátt. Lögð er áhersla á að símenntun er til hagsbóta fyrir báða aðila og á ábyrgð beggja. Nánari upplýsingar eru í reglum um símenntun.
Breytingar og tilfærslur í starfi
Stöðugt má búast við breytingum á viðfangsefnum og vinnuaðferðum í því starfsumhverfi sem stofnunin býr við í dag. Starfsmenn þurfa að vera undir það búnir að breytingar geti orðið á starfi og starfsvettvangi með tilliti til verkefna og vinnuaðferða. Styðja ber viðleitni til að efla og auka hæfni starfsmanna í þágu stofnunarinnar og þeirra sjálfra þannig að þeir verði hæfari til að takast á við ný og breytt verkefni. Leitast skal við að verða við óskum starfsmanna um flutning milli starfa ef þess er kostur.
Starfslok
Fyrir uppsögn skulu vera málefnalegar ástæður og gætt skal til ítrasta ákvæða laga og kjarasamninga. Gefa skal starfsmanni kost á starfslokasamtali við yfirmann. Samkvæmt lögum skal ríkisstarfsmaður að jafnaði láta af störfum í síðasta lagi í lok þess mánaðar sem hann verður 70 ára. Stuðla skal að því að starfsmenn geti undirbúið starfslok vegna aldurs, t. d. með því að minnka við sig vinnu eða breyta um starf áður en að starfslokum kemur.
Starfsagi
Starfsmenn skulu fylgja reglum sem í gildi eru og lögmætum fyrirmælum yfirmanna sinna. Starfsmenn skulu sýna sjálfstæði, heiðarleika, trúmennsku og vandvirkni. Þeir skulu gæta þagmælsku um atriði sem þeir verða áskynja í starfi og trúnaður á að ríkja um. Þeir skulu gæta þess að framkoma og athafnir á vinnustað og utan samrýmist starfinu sem þeir gegna og komi ekki niður á starfinu. Starfsmenn skulu vera reiðubúnir að bæta ráð sitt ef út af bregður.
Samskipti á vinnustað
Siglingastofnun leggur ríka áherslu á góðan starfsanda á vinnustað. Slíkt eykur starfsgleði og árangur og gerir stofnunina eftirsóknarverðan starfsvettvang. Starfsmenn skulu sýna hver öðrum virðingu og jákvætt viðmót í öllum samskiptum. Starfsmenn skulu vera reiðubúnir til að vinna saman að sameiginlegum markmiðum og stuðla með yfirstjórn að styrkum starfsanda. Ummæli, tjáning eða atferli sem truflar aðra, ögrar þeim, ógnar eða veldur öðrum óþægindum verða ekki umborin. Kynferðisleg áreitni, einelti og önnur ótilhlýðileg háttsemi á vinnustað telst alvarlegt brot og meðhöndlast í samræmi við það. Áætlun um aðgerðir og ferlakort um meðferð slíkra mála hefur verið samin.
Upplýsingar og boðmiðlun
Stofnunin leggur áherslu á góða og nútímalega stjórnunarhætti sem m. a. felast í jákvæðu viðhorfi stjórnenda til samstarfsmanna og þeir skulu stuðla að skýrum boðleiðum og virku flæði upplýsinga milli starfsmanna og starfshópa. Ákvörðunarvald og ábyrgð stjórnenda gagnvart starfsmönnum skal vera vel skilgreind og starfsmönnum ljós. Allar almennar upplýsingar um stefnu og starfsemi stofnunarinnar skulu vera starfsmönnum aðgengilegar. Sama gildir um málefni er varða réttindi þeirra og skyldur. Stofnunin leggur kapp á markvissa upplýsingagjöf til starfsmanna með fundum, miðlun á innraneti og annan máta.
Jafnrétti
Þess skal gætt að jafnræðisreglu sé fylgt í hvívetna, en í því felst að óheimilt er að mismuna starfsfólki vegna aldurs, kynferðis, kynþáttar, stjórnmála- eða trúarskoðana eða af öðrum ómálefnalegum ástæðum. Það er stefna stofnunarinnar að hlutur kvenna aukist í starfseminni.
Vinnuvernd, umhverfis- og öryggismál
Það er stefna stofnunarinnar að fylgja í hvívetna lögum og reglum um vinnuvernd, umhverfis- og öryggismál á vinnustað. Stofnunin telur það vera gagnkvæma hagsmuni að vellíðan og heilbrigði starfsmanna sé haft að leiðarljósi. Málefni sem snerta heilsu, öryggi og vinnuumhverfi er sameiginlegt verkefni allra starfsmanna og nauðsynlegt er að starfsmenn séu meðvitaðir í þessu efni og hafi tækifæri til að koma á framfæri ábendingum og tillögum til úrbóta varðandi heilsu og velferð starfsmanna. Það er stefna stofnunarinnar að gera þetta kleift og taka fullt tillit til slíkra ábendinga sem til framfara geta horft.
Félagsstarf og heilsurækt
Stofnunin styður félagsstarf starfsmanna með það að markmiði að efla samkennd og samstöðu þeirra á meðal og stuðla að kynnum starfsmanna á viðfangsefnum og starfsvettvangi starfsfélaga sinna sem og fjölskylduvænna viðburða í samvinnu við starfsmannafélag. Stofnunin styður viðleitni starfsmanna til að efla heilsu og vellíðan með ástundun líkamsþjálfunar. Sjálfsagt er að starfsmenn gæti eins og kostur er að eigin heilsufari. Stofnunin mun aðstoða eftir mætti við úrlausn vanda er tengist misnotkun vímuefna.