Jafnréttisáætlun

VIÐAUKI II

JAFNRÉTTISÁÆTLUN SIGLINGASTOFNUNAR ÍSLANDS

Í anda laga nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, hefur Siglingastofnun Íslands (SÍ) sett sér eftirfarandi áætlun um hvernig komið skuli á og viðhaldið jöfnum rétti kvenna sem karla í starfsemi stofnunarinnar. Áætlunin er sett til nánari fyllingar ákvæðum um sama efni í starfsmannastefnu Siglingastofnunar.

Markmið
Markmið jafnréttisáætlunarinnar er að stuðla að jafnrétti kynjanna, jafnri stöðu og virðingu kvenna og karla innan SÍ, ennfremur að minna stjórnendur og starfsmenn á mikilvægi þess að allir fái notið sín án tillits til kynferðis. Mikilvægt er að nýta til jafns þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu og viðhorfum kvenna og karla.

Í öllu starfi SÍ skal unnið gegn viðhorf um sem leiða til aðstöðumunar kvenna og karla í þjóðfélaginu. Jafnréttismál og leiðir til að vinna að jafnri stöðu kynjanna er virkur þáttur í starfsmannastefnu SÍ.

Siglingastofnun leggur áherslu á eftirfarandi:
Að þess sé gætt við ákvörðun launa að kynjum sé ekki mismunað. Konum og körlum skulu greidd jöfn laun og skulu þau njóta sömu kjara fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf.

Að konur komi til jafns við karlmenn að mótun stefnu SÍ og taki þátt í starfshópum og vinnunefndum, er efnt er til um málefni hennar og/eða verkefni.

Að í auglýsingum verði störf ókyngreind og að kynningarefni höfði jafnt til kvenna sem karla.

Að stefna að sem jöfnustu hlutfalli kynja í störf um og gæta þess við úthlutun verkefna, tilfærslu og framgangs að einstaklingum sé ekki mismunað vegna kynferðis.

Að tryggja að konur og karlar njóti sömu möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar.

Að gera starfsmönnum kleift að samræma starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu með sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða með annarri vinnuhagræðingu, eftir því sem við verður komið.

Að starfsmaður geti leitað til jafnréttisfulltrúa með mál er varða hvers kyns áreitni og misrétti.

Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi