Siðareglur
VIÐAUKI III
SIÐAREGLUR STARFSMANNA SIGLINGASTOFNUNAR ÍSLANDS
Við virðum trúnað og gætum þagmælsku varðandi atriði sem við fáum vitneskju um í starfi okkar og leynt eiga að fara.
Við rækjum starf okkar af alúð og samviskusemi, gætum kurteisi, lipurðar og réttsýni og veitum þeim er til okkar sækja aðstoð og leiðbeiningar.
Við erum ábyrg fyrir ákvörðunum, árangri og háttsemi.
Við byggjum ákvarðanir á hlutlægum rökum og gætum jafnræðis.
Við virðum aðgang almennings að upplýsingum og stöndum vörð um gegnsæi stjórnsýslunnar.
Við gætum réttsýni við úrlausn mála og misbeitum ekki valdi okkar. Við misnotum ekki stöðu okkar, sjálfum okkur eða öðrum til ávinnings. Við hlýðum löglegum fyrirmælum yfirmanna og gegnum skyldum okkar.