Reksturs- og fjármálastefna

VIÐAUKI IV

REKSTUR – OG FJÁRMÁLASTEFNA SIGLINGASTOFNUNAR ÍSLANDS

  • Fjárhags- og verkefnalegur rekstur Siglingastofnunar Íslands (SÍ) byggir á þeim reglum og fyrirmælum, sem fram koma í eftirtöldum heimildum:
  • Lög nr. 6,19. mars 1996 um Siglingastofnun Íslands
  • Lög nr. 71,8. maí 2002 um samgönguáætlun
  • Auglýsing nr. 93,4. apríl 2003 um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2003 – 2006
  • Auglýsing nr. 94,4. apríl 2003 um samgönguáætlun fyrir árin 2003 - 2014
  • Lög nr. 88, 27. maí 1997 um fjárreiður ríkisins
  • Reglugerð nr. 1061, 22. desember 2004 um framkvæmd fjárlaga og ábyrgð á fjárreiðum ríkisstofnana í A – hluta.
  • Samningur milli samgönguráðuneytisins og Siglingastofnunar Íslands, dags. 29. desember 2002. Gildistími hans er fimm ár eða frá 1. janúar 2001 til og með 31. desember 2005.
  • Lög nr. 86, 27. maí 1997 um Ríkisendurskoðun
  • Fjárlög eins og þau eru hverju sinni

SÍ virðir í rekstri sínum þær fjárheimildir sem stofnuninni eru veittar, nýtir fjármuni á árangursríkan hátt og fylgir þeim lögum og reglugerðum er um starfsemina gilda.

SÍ starfar í samræmi við sjónarmið um árangurstjórnun í ríkisrekstri og fylgir þeim markmiðum sem stofnuninni eru sett af þar til bærum aðilum.

SÍ og samgönguráðuneytið hafa gert með sér árangurstjórnunarsamning þar sem hlutverk stofnunarinnar er skilgreint, markmið og stefnumótandi áherslur settar og samskiptaferli ákveðið.

SÍ eru mörkuð langtímamarkmið í lögum um samgönguáætlun sem og þingsályktunum um sama efni.

SÍ hefur á grundvelli framanritaðs mótað sér framtíðarsýn, skilgreint
áfangamarkmið og verkefni og sett sér mælikvarða allt til að þróa með sér samhæft árangursmat.

SÍ tekur saman og sendir ráðuneyti tillögur sínar um útgjöld og tekjur komandi árs ásamt með viðeigandi greinargerðum allt í því formi og innan þeirra tímamarka sem stofnuninni eru settar.

SÍ setur sér ársáætlun þegar forsendur komandi fjárlaga liggja fyrir í frumvarpi þar sem tilgreind eru á grunni kostnaðargreiningar og verkefnabókhalds markmið og mælikvarðar í starfi stofnunarinnar og áætlun um útgjöld vegna þeirra meginverkefna sem unnið er að. Öll yfirstjórn stofnunarinnar kemur að þessu verkefni.

SÍ tekur árlega saman, samhliða hefðbundnu uppgjöri í formi efnahags- og rekstarreiknings, greinargerð um útgjöld og fjárheimildir, auk talnalegs samanburðar á markmiðum ársins og útkomu.

SÍ færir bókhald sitt á rekstrargrunni, sbr. fyrirmæli Ríkisbókhaldsins frá 28. apríl 200, þar sem afstemmingar og fjárumsýsla uppfylla kröfur um innra eftirlit og bókhaldsfyrirmæli.

SÍ setur saman og skilar ársreikningi og eignaskrá í samræmi við reglur og fyrirmæli.

Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi