Gæðastefna

VIÐAUKI VII

GÆÐASTEFNA SIGLINGASTOFNUNAR ÍSLANDS

Það er stefna Siglingastofnunar Íslands að tryggja öryggi og velferð sjófarenda, ásamt því að koma í veg fyrir að hafið og auðlindir þess spillist afvöldum mengunar frá skipum.

Stofnunin veitir viðskiptavinum sínum alhliða þjónustu og tryggir aðgang að upplýsingum og þekkingu sem eru á verksviði hennar með gæði að leiðarljósi.

Stofnunin og starfsmenn hennar munu leitast við að halda uppi réttum gæðum og tryggja að fyllsta hlutleysis sé gætt. Þannig verði mætt væntingum viðskiptavina og stjórnvalda.

Stofnunin mun kappkosta að hafa yfir að ráða hæfu starfsfólki og viðurkenndum aðföngum.

Stofnunin leggur áherslu á menntun og þjálfun starfsfólks til að viðhalda réttum gæðum og aukinni gæðavitund.

Stofnunin beitir sér fyrir því, að starfsmenn sýni gott viðmót og veiti góða þjónustu.
Mælikvarði á þjónustugæði er stuttur biðtími eftir þjónustu og jákvætt viðhorf viðskiptavina í þjónustukönnunum.

Stofnunin stuðlar að því að aðgengi allra starfsmanna að almennum upplýsingum um reksturinn sé gott.

Stofnunin mun fara að kröfum og bæta stöðugt virkni gæðastjórnunarkerfisins.

Siglingamálastjóri er ábyrgur fyrir því að allir starfsmenn stofnunarinnar þekki og skilji gæðastefnuna og hafi hana að leiðarljósi í sínu starfi.

Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi