Öryggisstefna

VIÐAUKI VIII

ÖRYGGISSTEFNA SIGLINGASTONFUNAR ÍSLANDS

Siglingastofnun Íslands (SÍ) mun við mótun og útfærslu stefnu sinnar í öryggismálum hafa hliðsjón af staðlinum:

ÍST ICO/IEC 177799 – Starfsvenjur fyrir stjórnun upplýsinga sem eru grundvöllur skipulags og viðhaldsaðgerða sem standa vörð um leynd, réttleika og tiltækileika gagna og upplýsingakerfa.

Aðalatriði öryggisstefnunnar eru sem hér segir:

  • SÍ vill hámarka öryggi upplýsinga í sinni vörslu m. t. t. leyndar, réttleika og tiltækileika. Stjórnun upplýsingaöryggis er hluti af gæðakerfi.
  • SÍ fylgir lögum, reglum og leiðbeiningum fyrir stjórnun upplýsingaöryggis og viðhalds ráðstafana sem standa vörð um leynd, réttleika og tiltækileika gagna og upplýsingakerfa.
  • Stefna SÍ í öryggismálum er bindandi fyrir alla starfsmenn og nær til allra sem veita stofnuninni þjónustu.
  • Allir starfsmenn og þjónustuaðilar SÍ er skuldbundnir til að vernda
    gögn og upplýsingakerfi gegn óheimiluðum aðgangi, notkun,
    breytingum, uppljóstrun, eyðileggingu, tapi eða flutningi.
  • SÍ eflir virka öryggisvitund starfsmanna, þjónustuaðila, viðskipta
    vina og gesta.
  • SÍ stuðlar að framfylgd stefnunnar með ráðstöfunum sem miðast við störf og ábyrgð viðkomandi einstaklinga.
  • SÍ framkvæmir reglulega áhættugreiningu til þess að ákveða hvort frekari aðgerða sé þörf.
  • SÍ tekur árlega saman skýrslu um framkvæmd og virkni öryggisstefnunnar.
  • Starfsmönnum og þjónustuaðilum, núverandi og fyrrverandi, er óheimilt að veita upplýsingar um innri mál SÍ, viðskiptamanna eða annarra starfsmanna.
  • Stefnu þessa skal endurskoða eins oft og tilefni er til en þó eigi sjaldnar en á tveggja ára fresti.
Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi