STCW-alþjóðasamþykktin
Í STCW-alþjóðasamþykktinni um menntun og þjálfun, skírteini og vaktstöður sjómanna er kveðið á um samræmdar kröfur um hæfni skipstjóra, annarra yfirmanna og sjómanna sem standa vaktir um borð í kaupskipum. Sjá lög um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa nr. 76/2001 og rg. nr. 416/2003.
Jafnframt eru í samþykktinni ákvæði um örugga vaktstöðu yfirmanna um borð í kaupskipum. Sjá reglugerð um vaktstöður um borð í íslenskum farþegaskipum og flutningaskipum
Siglingastofnun Íslands gefur út alþjóðleg atvinnuskírteini - STCW-skírteini og áritanir samkvæmt lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa.
Ísland hefur verið aðili að STCW-samþykktinni frá árinu 1995. Upphaflega samþykktin er frá 1978 en árið 1995 samþykkti IMO verulegar breytingar á henni.
Nánari úttekt um STCW-samninginn, menntunarmál og atvinnuskírteini farmanna er að finna í 3. tbl. 4. árgangs af fréttabréfi Siglingastofnunar: Til sjávar