Skipamælingar
Skipamælingar framkvæmd, yfirferð og samþykkt útreikninga, útgáfa mælibréfs.Lýsing:
Lög um skipmælingar nr. 146/2002, með síðari breytingum, gera ráð fyrir að sérhvert fljótandi far sem skráð er á íslenska skipaskrá, skuli mælt. Senda skal inn til Siglingastofnunar þau gögn sem talin eru nauðsynleg vegna eftirlits í þremur eintökum.
Eftirlit:
Skipamælingar skiptast í þrjú verkefni með mismunandi verklagi, brúttótonnamælingu skipa með mestu lengd allt að 15 metrar, brúttótonnamælingu skipa með mestu lengd 15 metra eða lengri og brúttórúmlestamælingu. Verklag við hvert framangreindra verkefna fer í stuttumáli fram á þann veg sem hér greinir:
Brúttótonnamæling skipa með mestu lengd allt að 15 metrum:
Farið er á vettvang og aðalmál skipsins mæld, skráningarlengd, skráningarbreidd, mótuð dýpt og mesta lengd. Á skrifstofu eru brúttó- og nettótonnastærðir skipsins reiknaðar og gerð mælingarskýrsla, sem lögð er hjá skipaskráningu til útgáfu á mælibréfi og skráningarskírteini. Afrit skýrslunnar, ásamt mælingargögnum, er sett í skjalageymslu á Skipatæknideild.
Brúttótonnamæling skipa með mestu lengd 15 metrar eða lengri:
Einkareknar skipatækniþjónustur mæla skipin og reikna út heildarrúmmál þeirra og brúttó- og nettótonnatölu skipanna og senda Skipatæknideild niðurstöðurnar til samþykktar. Fulltrúi Siglingastofnunar fer um borð í skipið til að kanna hvort skipið sé smíðað á þann veg sem mælingar og útreikningar skipatækniþjónustunnar sýna. Að því loknu yfirfer hann öll gögn á skrifstofu, bæði gögn skipatækniþjónustunnar og sín eigin, og útbýr mælibréf á grundvelli niðurstöðunnar, þar sem tilgreind eru öll þau rými sem brúttó- og nettótonnastærð skipsins byggir á. Skipatæknideild gefur síðan út mælibréf sem skipsskjal í umboði ríkisstjórnar Íslands. Eitt eintak útreikninganna er endursent til skipatækniþjónustunnar með áritun, en annað eintak útreikninganna, sem og öll önnur gögn varðandi mælinguna, eru sett í skjalasafn Skipatæknideildar.
Brúttórúmlestamæling:
Brúttórúmlestamæling þilfarsskipa fer fram á þann veg að mæla þarf öll aðalmál skipsins. Enn fremur þverskurði bolsins með ákveðnu millibili með tilliti til stærðar skipsins. Einnig er mæld hæð á böndum, botnstokkum og vélarundirstöðum sem og vistarverur ofan aðalþilfars, sem reglum skv. ber að reikna með í heildarrúmtaki. Að því loknu er reiknað út rúmtak á hverju einstöku rými, niðurstöður lagðar saman og heildarniðurstaðan umreiknuð í brúttórúmlestir.
Brúttórúmlestamæling opinna báta fer fram á þann veg, að mæld er mesta lengd bátsins milli stafna, breidd hans á milli banda í borðstokkshæð og dýpt frá borðstokki niður á botnstokk miðskips. Niðurstöðutölur eru margfaldaðar hver með annarri og deilt í niðurstöðuna með stuðli, sem byggir á alþjóðasamningi um brúttórúmlestamælingar.
Brúttórúmlestir eru skráðar á mælibréf og öll gögn varðandi mælinguna eru sett í skjalasafn Skipatæknideildar.
Gjaldtaka:
Gjöld vegna skipamælinga eru í samræmi við 7. gr. gjaldskrár Siglingastofnunar Íslands nr. 81/2007, sem staðfest er af samgönguráðuneytinu.
Stærðarmæling á nýjum skipum:
Skipasmíðastöðvar og eigendur skipa eru sameiginlega ábyrg fyrir greiðslu vegna vinnu við skipamælingar skv. útseldum taxta Siglingastofnunar og að auki fyrir greiðslu á öllum hugsanlegum ferðakostnaði.
Stærðarmæling á gömlum skipum:
Eigendur skipa greiða fyrir stærðarmælingu skipa sinna skv. gjaldskrá Siglingastofnunar og að auki greiða þeir allan hugsanlegan ferðakostnað.
Starfsmaður:
Steingrímur Hauksson
Tilvísanir:
Lög um skipmælingar nr. 146/2002.
Reglugerð um mælingu skipa með lengd allt að 24 metrum nr. 527/1997.
Reglur um mælingar skipa, 244/1987, m. br., sbr. alþjóðasamþykkt
Auglýsing um gildistöku alþjóðasamnings um mælingar skipa nr. 11/1987.
Reglur um skipamælingar nr. 167/1967 - myndir.
Lög um eftirlit með skipum nr. 47/2003.
Reglur um smíði og búnað báta með mestu lengd allt að 15 metrum nr. 592/1994.
Verklagsreglur:
25.03.02.02.02 Mæling báta með mestu lengd allt að 15 metrum.
25.03.02.02.03 Mæling báta með mestu lengd allt að 15 metrum,
sem búnir eru skutgeymi, stýriskassa, síðustokkum og/eða veltikjölum.
Minnisblað um skipamælingar.
Grein um skipamælingar e. Ara Guðmundsson skipatæknifr.