Rannsóknir
Í samgönguáætlun fyrir árin 2005-2008 er kostnaður við rannsóknir og þróun áætlaður 50 m.kr. árlega. Með rannsóknum er átt við öflun ýmissa grunnupplýsinga, mælingar og rannsóknir sem stuðla að öryggi sjófarenda og réttum ákvörðunum við val á lausnum við mannvirkjagerð. Verði samþykkt að ráðast í rannsóknir er tengjast nýjum mannvirkjum, öðrum en hefðbundnum fiskihöfnum, verður að ætla þeim rannsóknum sérstakar fjárveitingar. Þar er átt við rannsóknir sem tengjast m.a. iðjuverum. Helstu verkefnisflokkar eru:Alþjóðleg ráðstefna sumarið 2005
Dagana 5. til 8. júní 2005 var haldin alþjóðleg ráðstefna á Höfn í Hornafirði um rannsóknir á náttúrufari hafs og strandar, öryggi sjófarenda og mannvirki á ströndinni.
Megináherslan var lögð á gerð og stöðugleika sjávarstranda, hönnun brimvarna- og sjóvarnagarða, sjávarfallaósa og sjávarfallaspár, öldu og brotölduspár og á öryggi sjófarenda einkum er varðar stöðugleika og siglingar skipa í hættulegum öldum.
Skiparannsóknir Siglingastofnunar voru kynntar auk rannsókna á öryggi skipa á siglingaleiðum við Suðvesturland og utan Hornafjarðaróss og á ferjuleiðinni milli Vestmannaeyja og lands. Ölduspár, brotölduspár og sjávarfallalíkan Siglingastofnunar og þróunarverkefni sem tengjast þessum verkefnum voru kynnt á ráðstefnunni.