1. desember 1986 Nr. 493
R E G L U R
um merkingu skipa.
1. gr.
Gildissvið
1.1. Reglur þessar gilda um öll íslensk skip og báta, sem eru 6 metrar eða lengri, mælt milli stafna.
1.2. Bátum, sem við gildistöku þessarar reglugerðar eru merktir skráningarnúmeri sem skilgreint er með bókstöfunum B eða S, er heimilt að halda skráningarnúmeri sínu óbreyttu í allt að tvö ár eftir að reglur þessar öðlast gildi.
2. gr.
Almenn ákvæði
2.1. Hvert skip og bátur skal vera merktur með nafni á bóg beggja megin. Fiskiskip skulu auk þess vera merkt með umdæmisstöfum og tölum á bóg beggja megin.
2.2. Hvert skip, sem er stærra en 30 brl., skal vera merkt með nafni og heimahöfn á afturgafli eða við afturstafn beggja megin.
2.3. Þilfarsfiskiskip, og önnur skip og bátar allt að 15 metrar mesta lengd, skulu vera merkt með skipaskrárnúmeri á heppilegum stað á báðum síðum.
2.4. Hvert skip, sem þjóðernisskírteini hlýtur, skal vera merkt með einkennisstöfum þess á lúgubita eða karm.
3. gr.
Skráningarumdæmi
3.1. Hvert skipaskráningarumdæmi hefur sína umdæmisbókstafi og skulu skráningarskyld fiskiskip og bátar bera umdæmisbókstafi þess umdæmis, sem skipið/báturinn er skráður í, ásamt umdæmisnúmeri aftan við umdæmisbókstafina.
3.2. Umdæmisbókstafir eru sem hér greinir:
AK Akranes NS Norður-Múlasýsla og Seyðisfjörður
ÁR Árnessýsla ÓF Ólafsfjörður
BA Barðastrandarsýsla RE Reykjavík
EA Eyjafjarðarsýsla og Akureyri SF Austur-Skaftafellssýsla
DA Dalasýsla SH Snæfellsness- og Hnappadalssýsla
GK Gullbringusýsla SI Siglufjörður
HF Kjósarsýsla og Hafnarfjörður SK Skagafjarðarsýsla og Sauðárkrókur
HU Húnavatnssýsla ST Strandasýsla
ÍS Ísafjarðarsýslur og Ísafjörður SU Suður-Múlasýsla
KE Keflavík ÞH Þingeyjarsýslur
KO Kópavogur VE Vestmannaeyjar
MB Mýra- og Borgarfjarðarsýsla VS Vestur-Skaftafellssýsla
NK Neskaupstaður
3.3. Skip og bátar, sem skráðir eru í Kjósarsýslu eða Hafnarfirði mega halda umdæmisbókstöfum (GK) og tölum óbreyttum, en við frumskráningu skips eða umskráningu vegna eigendaskipta, skal það hljóta umdæmisbókstafina HF.
4. gr.
Bókstafir og tölur
4.1. Stafagerð skal vera háð samþykki Siglingamálastofnunar ríkisins.
4.2. Bókstafir og tölur skulu vera dökkir stafir á ljósum grunni, eða ljósir stafir á dökkum grunni.
4.3. Hæð á bókstöfum í nafni og heimilisfangi skal ekki vera minni en sem hér greinir:
Á skipum 30 brl. og stærri .................................................................................15 cm
Á skipum minni en 30 brl. ...................................................................................12 cm
Á seglbátum og öðrum bátum minni en 10 metrar mesta lengd .............................10 cm
4.4. Hæð á umdæmisbókstöfum og tölum skal ekki vera minni en sem hér greinir:
Á skipum 30 brl. og stærri ..................................................................................45 cm
Á skipum minni en 30 brl. ....................................................................................25 cm
Á bátum minni en 10 metrar mesta lengd .............................................................10 cm
4.5. Hæð á skráningarnúmeri skal ekki vera minni en sem hér greinir:
Á skipum 30 brl. og stærri ..................................................................................45 cm
Á skipum minni en 30 brl. ....................................................................................25 cm
Á bátum minni en 10 metrar mesta lengd ................................................... .........20 cm
Á seglbátum .......................................................................................................15 cm
4.6. Hæð á einkennisbókstöfum skipa með þjóðernisskírteini, skal ekki vera minni en 15 cm.
5. gr.
Ábyrgð skipstjóra
5.1. Bannað er að afmá einkenni þau, sem að ofan greinir, afbaka þau, gera þau óþekkjanleg, hylja þau eða dylja. Sama gildir um útlend skip meðan þau eru innan íslenskrar landhelgi.
5.2. Sú skylda hvílir á skipstjóra skips að halda vel við öllum merkjum er skipi ber að hafa og sett hafa verið á það.
6. gr.
Refsingar
6.1. Brot gegn reglum þessum varða sektum eða varðhaldi. Með mál út af brotum á reglum þessum skal fara að hætti opinberra mála.
7. gr.
Gildistaka
7.1. Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt lögum nr. 115, 31. desember 1985, um skráningu skipa, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur um merkingu skipa nr. 550, 1. september 1982.
Samgönguráðuneytið, 1. desember 1986.
Matthías Bjarnason.
____________________
Ragnhildur Hjaltadóttir.