Skip
Siglingastofnun annast framkvæmd laga um eftirlit með skipum, laga um mælingu skipa og laga um skráningu skipa.Siglingastofnun annast mál er varða siglinga- og sjómannalög að því leiti sem þau tengjast skipum, skráningu þeirra og búnaði, siglingaöryggi og öðrum málum sem Samgönguráðuneytið kann að fela stofnuninni varðandi siglingar og áhafnir skipa.
Lög um Siglingastofnun Íslands, 6/1996.
Smíði, búnaður, mengunarvarnir skipa o.fl.
Hvert skip skal smíðað og búið út á þann hátt að öryggi mannslífa sé tryggt eins og kostur er og með tilliti til þeirra verkefna sem því er ætlað á hverjum tíma.
Skip skal fullnægja skilyrðum reglna á hverjum tíma um smíði, búnað og örugga starfsemi skips, þ.m.t. um burðarvirki þess, vatnsþétta niðurhólfun, lagnakerfi, bol, björgunar- og öryggisbúnað, vélbúnað, fjarskiptabúnað, rafbúnað, eldvarnabúnað, mengunarvarnabúnað, siglingatæki, merkingar, lyf og læknisáhöld og annan búnað og mönnun sem varðar öryggi skipsins til að tryggja öryggi skipverja, farþega, skips og farms og varnir gegn mengun frá skipum.
Vinnusvæði og vistarverur skipverja skal hanna og búa með hliðsjón af öryggi og velferð skipverja.
Ráðherra ákveður nánar í reglugerð1) um smíði, stöðugleika, hleðslumerki og búnað skipa.
Ráðherra ákveður í reglum hvaða lög, stjórnvaldsfyrirmæli, skírteini og skipsbækur skuli vera um borð í skipum.
Skip skulu smíðuð og búin í samræmi við lög og reglur um varnir gegn mengun sjávar og stranda. . Lög um eftirlit með skipum, 47/2003 .