Skírteinaútgáfa
Skipstjórnarskírteini á skemmtibáta.
Eftir að lög nr. 30/2007 um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa tóku gildi 1. janúar 2008 verða skipstjórar á skemmtibátum sem eru 6 metrar að skráningarlengd og lengri að afla sér grunnþekkingar á öryggisþáttum sem tengjast siglingum og skipstjórn og hafa gilt skipstjórnarskírteini á skemmtibát, sjá 7. gr. laganna. Nánari reglur um próf til skemmtibátaskírteinis er að finna í reglum nr. 393/2008 og um skírteinið í 17. gr. reglugerðar nr. 175/2008.
Þeir sem ætla að sækja um skipstjórnarskírteini skemmtibáts þurfa að fylla út umsóknareyðublað sem nálgast má á heimasíðu Siglingastofnunar og á skrifstofu Siglingastofnunar Íslands í Kópavogi eða á Ísafirði. Eftirtalin gögn þurfa að fylgja umsókn áður en hún er tekin til afgreiðslu:
- Vottorð prófdómara bóklegs prófs
- Vottorð prófdómara verklegs prófs
- Læknisvottorð um sjón, heyrn og heilbrigði sjómanna yngra en 6 mánaða.
- Ein mynd í vegabréfastærð.
- Skírteinisgjald er kr. 3.500 og greiðist á skrifstofu Siglingastofnunar eða gegnum netbanka. Kvittun skal senda á netfangið sigling@sigling.is eða á fax 560 0060. Um reikningsupplýsingar má sjá á umsóknareyðublaði.
Siglingastofnun miðar við að afgreiða skírteini innan 5 virkra daga frá því öll gögn hafa borist. Umsækjendur geta óskað eftir því að fá skírteinið sent heim í pósti eða sótt það á skrifstofu Siglingastofnunar.
Skírteinishafar þurfa að hafa lokið bóklegu prófi, hér má sjá sýnishorn bóklegs prófs. Það er ekki skilyrði að viðkomandi hafi áður setið bóklegt námskeið. Bókleg próf eru samin af Siglingastofnun Íslands á grundvelli námskrár sem stofnunin gefur út og prófdómari skipaður af Siglingastofnun fer yfir úrlausnir og metur færni. Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins hefur boðið upp á bókleg próf og námskeið til undirbúnings þess.
Hér má nálgast spurningar og svör varðandi skemmtibátaskírteini.
Siglingastofnun hefur útbúið kynningarbækling um skemmtibáta; sem fjallar m.a. um innflutning, skráningu, CE-merki, björgunar- og öryggisbúnað og skoðanir eftirlitsaðila.
Eldri fréttir um skemmtibátaskírteini:
22. maí 2008 - Bókleg og verkleg próf á skemmtibáta
5. maí 2008 – Útgáfa skipstjórnarskírteina á skemmtibáta
28. apríl 2008 - Nýjar reglur um próf og skírteini fyrir skipstjóra skemmtibáta
23. apríl 2007 - Ný lög um áhafnir fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa.
24. nóvember 2006 – Frumvarp til laga um áhafnir íslenskra skipa
7. júlí 2005 – Kynningarbæklingur um skemmtibáta.