Hafnsaga og leiðsaga skipa

Hafnsaga skipa:

Í 12. gr. laga um vaktstöð siglinga nr. 41/2003 er kveðið á um að öll skip sem flytja hættulegan eða mengangi varning í farmrými eða á þilfari í meira magni en tiltekið er í reglugerð skuli hafa um borð hafnsögumann við siglingu um hafnarsvæði. Hafnarstjórn er heimilt að veita staðkunnugum skipstjórum undanþágu frá hafnsöguskyldu. Hafnarstjórnir ráða hafnsögumenn við hafnsöguskyldar og í hafnarreglugerðum einstakra hafna er fjallað um hafnsöguskyldu í viðkomandi höfn. Til að geta starfað sem hafnsögumenn þarf viðkomandi að uppfylla kröfur 13. gr. laga um vaktstöð siglinga nr. 41/2003 og reglugerðar um leiðsögu skipa nr. 320/1998

 

Leiðsaga skipa:

Í 13. gr. laga um vaktstöð siglinga nr. 41/2003 er kveðið á um að til að tryggja öryggi siglinga og varnir gegn mengun sjávar sé samgönguráðherra heimilt að ákveða með reglugerð að skip skuli hafa leiðsögumann við siglingar um tiltekið svæði eða við tilteknar aðstæður. Til að geta starfað sem leiðsögumaður skipa þarf viðkomandi að uppfylla kröfur 13. gr. laga um vaktstöð siglinga nr. 41/2003 og reglugerðar um leiðsögu skipa nr. 320/1998 og vera lögmætur handhafi gilds leiðsögumannsskírteinis.

 

 

Hér má sjá lista yfir þá sem eru handhafar hafnsögu- og leiðsögumannsskírteina.

Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi