Hlutverk

Siglingastofnun Íslands er framsækin þjónustustofnun sem skapar hagkvæmar aðstæður til siglinga og fiskveiða og vinnur að öryggi á sjó og strandsvæðum

Gildi
Samvinna, þjónusta, frumkvæði

Framtíðarsýn
Siglingastofnun Íslands mun:

  • vinna að öryggi og aukinni velferð sjófarenda
  • vinna að hagkvæmni í siglingum, sjávarútvegi og samgöngum
  • reka öflugustu upplýsinga- og leiðsöguþjónustu í N-Atlantshafi
  • starfa sem viðurkennd þekkingar- og rannsóknarmiðstöð á sviði siglinga- og hafnamála
  • veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf á sérsviðum stofnunarinnar
  • vera virkur þátttakandi í mótun heildarstefnu stjórnvalda um samgöngur, skip, hafnir, strandlengju og umhverfismál sjávar
  • vera virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi
  • Meginmarkmið
  • Að veita viðskiptavinum öfluga fyrsta flokks þjónustu
  • Hafa á að skipa ánægðu og vel menntuðu starfsliði
  • Að byggja reksturinn á góðri nýtingu fjárheimilda, öflugri áætlanagerð og eftirfylgni
  • Að innra starf stofnunarinnar sé skilvirkt
  • Stuðla að hagkvæmni í uppbyggingu og rekstri hafna, leiðsögukerfa og annarar öryggisþjónustu fyrir skip
  • Stuðla að því að lög og reglur um siglingamál tryggi sem best öryggi sjófarenda og séu  jafnan í samræmi við samfélagsþarfir
  • Að sinna eftirlitshlutverki sínu með prýði 
  • Að vinna að rannsóknum og gagnaöflun á sérsviðum stofnunarinnar
  • Tryggja að alþjóðlegar reglur taki mið af íslenskum hagsmunum
  •  

    Veður og sjólag
    Framkvæmdir
    Öryggi sjófarenda
    Vakstöð siglinga

    Leit

    Leit
    Leturstærð
    • Minnka letur
    • Stækka letur
    • Breyta bakgrunnslit
    Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi