Skipstjórnarnám
Námsskrá skipstjórnarnáms
Menntamálaráðuneytið hefur birt í Stjórnartíðindum auglýsingu um gildistöku aðalnámsskrár framhaldsskóla, skipstjórnarnám, nr. 668/2009, sbr. 853/2009, sem kemur í stað auglýsingar nr. 661/2004.
|
Skipstjórnar-braut, Augl. 668/2009 |
Einingar-Annir |
Réttindi á önnur skip en farþega- og flutningaskip, rg. nr. 175/2008* |
Réttindi á farþega- og flutningaskip, rg. nr. 416/2003* |
Eldri skipan rg. nr. 118/1996 (brottfallin) |
|
|
<12 m í strandsiglingum |
|
30 brl. | |
|
46 - 2 |
<24 m í innanlandssiglingum |
|
80 brl. | |
|
79 - 4 |
<45 m í innanlandssiglingum |
<500 BT í strandsiglingum (STCW-regla II/3) |
1. stig (200 brl.- 84 ein.) | |
|
|
142 - 7 |
Ótakmörkuð
|
<3000 BT (STCW-regla II/1 og STCW-regla II/2(b) ) |
2. stig (152 ein.) |
|
160 - 8 |
Yfirstýrimaður á varðskip Undirstýrimaður á varðskip**
|
Ótakmörkuð (STCW-regla II/2) |
3. stig (174 ein.) | |
|
174 - 9 |
Skipherra á varðskip |
|
4. stig |
* að uppfylltum öðrum skilyrðum um siglingatíma, námskeið, heilbrigði, sjón og heyrn.
** sjá reglugerð nr. 248/2010.
Boðið er upp á ofannefnt skipstjórnarnám í eftirfarandi skólum, sem starfa skv. lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008:
Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins; Skipstjórnarskólinn; skipstjórnarbraut A-E (kjarnaskóli)
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu; skipstjórnarbraut A
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum; skipstjórnarbraut A og B
Smáskipanámskeið kemur í stað gamla „pungaprófsins“ (30 brl.), sjá 6. gr. rg. um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum, nr. 175/2008. Sjá aðalnámsskrá framhaldsskóla, skipstjórnarnám, bls. 62-68:
Siglingafræði og samlíkir SIG 102 2 ein.
Slysavarnir SLY101 1 ein.
Siglingareglur og sjóréttur 16 kst.
Siglingatæki og fjarskipti 25 kst.
Skipahönnun og vélfræði 6 kst.
Stöðugleiki og skipstjórn 12 kst.
Veðurfræði og umhverfisvernd 7 kst.
Tækniskólinn, býður upp á smáskipanámskeið - lotufjarnám og smáskipanámskeið í Reykjavík. Jafnframt er boðið upp á smáskipanám í öðrum framhaldsskólum úti á landi.
Námsskrá fyrir skipstjórnarnám á skemmtibáta að 24 metrum að skráningarlengd, sjá nánar á heimasíðu Siglingastofnunar.
Tækniskólinn, býður upp á undirbúningsnámskeið - fjarnám og undirbúningsnámskeið í Reykjavík