Leyfisveitingar
Eftirlit með starfsleyfum
Lýsing:
Eftirlit með starfsleyfum, er eftirlit með starfsemi sem Siglingastofnun Íslands hefur veitt starfsleyfi fyrir, í samræmi við reglur um smíði báta styttri en 6 metrar, nr. 661/1996 og reglugerð um leyfi til farþegaflutninga með skipum, nr. 463/1998.
Eftirlit:
Eftirlit með flúðasiglingum, bátaleigum, æskulýðstarfsemi og sambærilegu.
Eftirlitið er skyndiskoðun þar sem farið er yfir búnað, aðbúnað, verklagsreglur og starfsleyfi í samræmi við skoðunarhandbók.
Eftirlit með farþegaleyfum.
Eftirlit með farþegaleyfum er tvenns konar:
• Skoðun vegna útgáfu farþegaleyfa.
• Skyndiskoðanir.
Skip skulu skoðuð vegna farþegaleyfa einu sinni á ári. Þessi skoðun má falla inn í reglubundna búnaðarskoðun
Eftirlit með Plastverkstæðum.
Upphafsskoðun vegna starfsleyfis og skyndiskoðanir, sjá verklagsreglu um samskipti skipatæknideildar við skoðunarstofur.
Gjaldtaka:
Eftirlit með starfsleyfum greiðist af Siglingastofnun Íslands. Vinna vegna eftirlits færist á viðeigandi verknúmer.
Starfsmenn:
Árni Friðriksson
Guðmundur Óli Lyngmó
Heiðar Kristinsson
Sævar Sæmundsson
Sigmar Þ. Sveinbjörsson
Tilvísanir:
Reglur um smíði báta styttri en 6 metrar, nr. 661/1996.
Reglugerð um leyfi til farþegaflutninga með skipum, nr. 463/1998.
Verklagsreglur:
25.01.02.03.02 Samskipti skipatæknideildar við skoðunarstofur