Mönnunarnefnd skipa

Mönnunarnefnd er skipuð og starfar samkvæmt lögum nr. 30/2007 um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa. Mönnunarnefnd er heimilt að ákveða frávik frá ákvæðum þessara laga um fjölda skipstjórnarmanna, vélavarða og vélstjóra eftir því sem tilefni gefst til.

Í mönnunarnefnd eiga sæti fulltrúar hagsmunaaðila að jöfnu, eftir tilnefningu Farmanna- og fiskimanna-sambands Íslands og Vélstjórafélags Íslands annars vegar og samtaka útgerðaraðila hins vegar. Skipaður skal varafulltrúi hvers aðalfulltrúa á sama hátt. Samgönguráðherra skipar formann nefndarinnar án tilnefningar og skal a.m.k. annar þeirra uppfylla almenn dómaraskilyrði. Nánari reglur um skipan og starfshætti mönnunarnefndar setur samgönguráðherra með reglugerð.

Í mönnunarnefnd sitja sem aðalmenn á tímabilinu 14. janúar  2008 til 31.desember 2010: Daði Jóhannesson formaður samkv. tilnefningu ráðherra, Friðrik Jón Arngrímsson samkv. tilnefningu LÍU, Guðfinnur G. Johnsen samkv. tilnefningu LÍÚ, Helgi Laxdal Magnússon samkv. tilnefningu Vélstjórafélags Íslands og Árni Bjarnason samkv. tilnefningu Farmanna- og fiskimannasambands Íslands.

Um mönnunarnefnd gilda eftirfarandi lög og reglugerðir: 
     Lög um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa, 13. grein laga 30/2007 
     Reglugerð um mönnunarnefnd skipa, 420/2003
     (Reglugerð um mönnunarnefnd skipa, 420/2003

Fundargerðir
Málaskrá
Úrskurðir

Erindi til nefndarinnar skal senda til Siglingastofnunar, Vesturvör 2, 200 Kópavogi eða á netfangið sigling [hjá] sigling.is

Einnig veitir Stefán Pálsson hjá Siglingastofnun Íslands upplýsingar um erindi til nefndarinnar og störf hennar. Netfang: stefan[hjá] sigling.is

Sjá: Eyðublað fyrir erindi til nefndarinnar

Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi