Lögskráning

Lög og reglur

Skip minni en 20 brúttótonn
Ekki er skylt að lögskrá á skip sem eru 20 brúttótonn og minni, en skv. 3. mgr. 16. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 47/2003 skal haffærisskírteini ekki gefið út fyrir skip sem er minna en 20 brúttótonn nema fyrir liggi yfirlýsing tryggingafélags um áhafnartryggingu skv. 2. mgr. 172. gr. siglingalaga nr. 34/1985, sbr. 3. gr. laga nr. 55/2001 um breytingu á lögum um lögskráningu sjómanna nr. 43/1987.

Fiskiskip 20 brúttótonn og stærri
Skylt er að lögskrá alla skipverja sem ráðnir eru til starfa á fiskiskipum sem skráð eru hér á landi og eru 20 brúttótonn eða stærri, þar með talið skipstjóra, sbr. 2. gr. laga um lögskráningu sjómanna nr. 43/1987. Jafnframt er heimilt er að lögskrá aðra en skipverja þann tíma sem viðkomandi dvelja um borð í skipi sem er í förum enda leggi þeir fram yfirlýsingu tryggingafélags um líf- og slysatryggingar, skv. greininni.

Farþegaskip 20 brúttótonn og stærri
Skylt er að lögskrá alla skipverja sem ráðnir eru til starfa á farþegaskipum sem skráð eru hér á landi og eru 20 brúttótonn eða stærri, þar með talið skipstjóra. Með reglugerð er heimilt að veita undanþágu til að lögskrá áhafnir farþegaskipa til skoðunarferða. Sú heimild er ekki veitt í reglugerð um lögskráningu sjómanna, nr. 880/2001 m. breyt. Jafnframt er heimilt að uppfylltum skilyrðum, sem nánar skulu skilgreind í reglugerð að ákveða fyrirkomulag lögskráningar á annan hátt vegna tiltekinna flokka skipa, sbr. 3. gr. reglugerðar um lögskráningu sjómanna nr.880/2001, m. breyt. Heimilt er að lögskrá aðra en skipverja þann tíma sem viðkomandi dvelja um borð í skipi sem er í förum enda leggi þeir fram yfirlýsingu tryggingafélags um líf- og slysatryggingar, sbr. 2. gr. laga um lögskráningu sjómanna nr. 43/1987.

Framkvæmd lögskráningar
Heimilt er að ákveða fyrirkomulag lögskráningar á farþegaskipum til skoðunarferða á annan hátt en kveðið er á um í 4. og 5. gr. laga um lögskráningu sjómanna nr. 43/1987, þ.e. að lögskrá fyrirfram fyrir einn mánuð í senn skv. sérstakri áætlun útgerðarmanns um mönnun hvers farþegaskips fyrir sig að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, sbr. 3. gr. rg. um lögskráningu sjómanna nr. 880/2001.

Flutningaskip 20 brúttótonn og stærri
Skylt er að lögskrá alla skipverja sem ráðnir eru til starfa á flutningaskipum sem skráð eru hér á landi og eru 20 brúttótonn eða stærri, þar með talið skipstjóra, sbr. 2. gr. laga um lögskráningu sjómanna,  nr. 43/1987.
Heimilt er að lögskrá aðra en skipverja þann tíma sem viðkomandi dvelja um borð í skipi sem er í förum enda leggi þeir fram yfirlýsingu tryggingafélags um líf- og slysatryggingar, sbr. 2. gr. laga um lögskráningu sjómanna.

Lögskráningargjald
Skv. 13. tölulið 13. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs nr. 88/1991 með síðari breytingum er gjald fyrir lögskráningu kr. 550.

Sjá ný lög nr. 35/2010 um lögskráningu sjómanna sem taka gildi 1. nóvember 2010, sjá frétt SÍ.

Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi