Atvinnuskírteini

Útgáfa atvinnuskírteina til sjómanna og reglur um mönnun skipa

Samgönguráðuneytið hefur sett reglugerð nr. 535/2008 sem breytir reglugerð um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum, nr. 175/2008. Með reglugerðinni eru sett nánari ákvæði um skipstjórnarnám, vélstjórnarnám, skírteinaflokka, yfirfærslu eldri skírteina í ný skírteini og um lágmarksmönnun skipstjórnar- og vélstjórnarmanna á fiskiskip, varðskip og önnur skip. Hér má nálgast reglugerð nr. 175/2008 með síðari breytingum.

Þeir sem ætla að sækja um atvinnuskírteini til starfa á fiskiskip, varðskip og önnur skip þurfa að fylla út umsóknareyðublað sem nálgast má á heimasíðu Siglingastofnunar, á skrifstofu Siglingastofnunar í Kópavogi/Ísafirði eða hjá sýslumönnum úti á landi og tollstjóranum í Reykjavík.  Siglingastofnun miðar við að afgreiða skírteini innan 5 virkra daga frá því öll gögn hafa borist. Umsækjendur geta óskað eftir því að fá skírteinið póstsent eða sótt það á skrifstofu Siglingastofnunar. Eftirtalin gögn þurfa að fylgja umsókn áður en hún er tekin til afgreiðslu:

  • Prófskírteini sem staðfestir menntun umsækjanda. Ef aðeins er um endurnýjun skírteinis að ræða þarf ekki prófskírteini.
  • Ljósrit eldra atvinnuskírteinis, ef um endurnýjun er að ræða
  • Staðfesting á siglingatíma. Ef um er að ræða siglingatíma á íslenskum skipum sem eru 20 BT og stærri gildir sá siglingatími sem skráður er í lögskráningarkerfi sjómanna. Siglingatíma á öðrum skipum þarf að sanna með því að leggja fram sjóferðabók eða vottorð tveggja trúverðugra manna.
  • Læknisvottorð yngra en 6 mánaða.
  • Tvær myndir í vegabréfastærð.
  • Skírteinisgjald er kr. 5.500 og greiðist á skrifstofu Siglingastofnunar eða gegnum netbanka. Kvittun skal senda á netfangið sigling@sigling.is eða á fax 560 0060. Um reikningsupplýsingar má sjá á umsóknareyðublaði.

Spurningar og svör um atvinnuskírteini og mönnun skipstjórnarmanna á fiskiskipum ofl.
Spurningar og svör um atvinnuskírteini og mönnun vélstjórnarmanna á fiskiskipum ofl.
Spurningar og svör um mönnun skipa.

Um atvinnuskírteini til starfa á íslenskum og erlendum farþegaskipum og flutningaskipum fer eftir lögum 76/2001 og 416/2003 m. breytingum, sjá umsókn um útgáfu eða endurnýjun á alþjóðlegu skírteini.

Eldri fréttir:
15.01.2008: Útgáfa atvinnuskírteina til sjómanna
23.04.2007: Ný lög um áhafnir fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa
24.11.2006: Frumvarp til laga um áhafnir skipa
Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi