Undanþágur
Í undantekningartilfellum og þegar menn með tilskilin skírteini vantar til starfa getur Siglingastofnun Íslands, telji hún að öryggi mannslífa, eigna eða umhverfis verði ekki stefnt í hættu, veitt tilteknum manni undanþágu til að gegna stöðu á tilteknu skipi í tiltekinn tíma hafi hann ekki tilskilin réttindi. Undanþágu í umrædda stöðu má þó ekki veita lengur en til sex mánaða, enda sé viðkomandi að mati Siglingastofnunar Íslands hæfur til að annast starfið á öruggan hátt.Undanþágunefnd veitir undanþágu til starfa á fiskiskipum og öðrum skipum en farþega- og flutningaskipum. Ákvörðun Siglingastofnunar og undanþágunefndar má vísa til samgönguráðuneytis. Sjá 14. gr. laga nr. 30/2007 og starfsreglur fyrir undanþágunefnd nr. 417/2003 (fiskiskip o.fl.)
Sækja um undanþágu til starfa á fiskiskipum
Vélstjórar í atvinnuleit - heimasíða VM
Skipstjórar og stýrimenn í atvinnuleit - heimasíða FFSÍ
Sækja um undanþágu til starfa á farþega- og flutningaskipum
Sækja um frest á öryggisfræðslu í Slysavarnaskóla sjómanna