EES/EB
EES-samningurinn tekur til frjáls flutnings fólks, fjármagns, þjónustu og vöru á hinum svokallaða innri markaði Evrópusambandsins. Undir þjónustu ákvæði samningsins heyra samgöngur og samgöngum er skipt upp í Flugsamgöngur, Vegasamgöngur og samgöngur á sjó.EES-samstarfinu er skipt upp eftir þessari skiptingu sem daglegu tali kallast fjórfrelsið. Fjórar megnistoðir samstarfsins skiptast upp í 4 undirnefndir sem hver og ein fer með og fjallar um þá málaflokka sem undir hana heyra en fimmta undirnefndin sinnir laga- og stofnanna málefnum samningsins.
Skipulag
Samgöngur og þar með siglingamál heyra undir undirnefnd II en þeirri nefnd er stjórnað nú af Noregi en var áður stjórnað af Íslandi. Undir þessum undirnefndum er svokallaðir vinnuhópar (Working groups) sem í sitja fulltrúar frá aðildarríkjum samningsins og Sviss. Þessir vinnuhópar fjalla efnislega um þau málefni sem inn í EES-samstarfið koma frá Evrópusambandinu. Vinnuhópur EFTA í samgöngum er nú undir formennsku Íslands og er formaður hópsins Kristján Vigfússon Verkefnisstjóri hér hjá stofnuninni. Vinuhópurinn í samgöngum sem fjallar m.a. um siglingamál hittist ca. 6 sinnum á ári og tekur afstöðu til og fer yfir þær tilskipanir, reglugerðir og eða aðra löggjörninga sem eru í vinnslu hjá Evrópusambandinu.
Sjá fundargerð frá fundi samgöngunefndar EFTA 25. september 2003
Hvað siglingamál áhrærir þá má skipta þeim málum upp í fjóra flokka innan samstarfsins. Í fyrsta lagi almenna stefnu í siglingamálum (maritime policy). Í öðru lagi siglingaöryggismál (maritime safety). Í þriðja áætlun um siglingar á styttri leiðum (Short sea shipping) og loks uppbyggingu og innviði siglinga og hafna (seaport and maritime infrastructure). Ísland tekur þátt í þessu öllu þessu samstarfi á siglignasviðinu og er því sinnt bæði af ráðuneyti og Siglingastofnun Íslands. Nátengt EES-samstarfinu er þátttaka Íslands í sérfræðinefndum Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem eru fjölmargar. Samkvæmt samningnum þá hefur Ísland rétt til þátttöku í fjölmörgum nefndum á siglingasviðinu sem eru á vegum Framkvæmdastjórnarinnar.
Nefnd EB um siglingaöryggi og varnir gegn mengun sjávar frá skipum (COSS)
Tenglar:
Vefsíða ESB
Vefsíða EFTA
Vefur íslenska utanríkisráðuneytisins
EES-reglur á sviði siglingamála
Væntanlegar EES-reglur á sviði siglingamála
Nokkur hugtök í Evrópusamvinnu
EUR-LEX - ESB-gerðir á opinberum tungumálum Evrópusambandsins
Hér er hægt að kynna sér stöðu tilskipana eða reglugerða sem eru í vinnslu