COSS
Hinn 23. maí 2003 hélt sinn fyrsta fund COSS-nefnd (Committee on Safe Seas and the Prevention of Pollution from Ships) EB um siglingaöryggi og varnir gegn mengun sjávar frá skipum, en EES ríkin hafa áheyrnaraðild að fundum nefndarinnar. Þessi nefnd leysir af hólmi aðrar nefndir sem hafa verið framkvæmdastjórn EB til aðstoðar á vettvangi siglingaöryggismála, þ.e.
* nefnd um flutning hættulegra efna, samkvæmt tilskipun 93/75/EB, fjallaði um flutning hættulegra efna, skipsbúnað, hafnarríkiseftirlit, öryggi farþegaskipa, skráningu farþega, skoðun ekjuferja, aðstöðu í höfnum til að taka á móti úrgangi, öryggi fiskiskipa, tvöfaldan byrðing olíuflutningaskipa og öryggisstjórnun á farþegaskipum.
* nefnd um flokkunarfélög, samkvæmt tilskipun 94/57/EB.
* nefnd um lágmarksþjálfun sjómanna á farþega- og
flutningaskipum, samkvæmt tilskipun 2001/25/EB.
Hlutverk nefndarinnar er að taka við verkefnum eldri nefnda á sviði siglingaöryggismála og vinna að vörnum gegn mengun sjávar frá skipum, bættum aðbúnaði og vinnuskilyrðum um borð í skipum. Jafnframt á nefndin að aðstoða og veita framkvæmdastjórninni ráðgjöf um öll mál á sviði siglingaöryggis og varns eða minni mengun umhverfis frá starfsemi skipa.
Greinargerðir frá fundum COSS-nefndar