Paris MOU

Parísarsamkomulagið um hafnarríkiseftirlit, Paris MOU (Paris Memorandum of Understanding on Port State Control),  er samkomulag 19 aðildarríkja sem Ísland varð fullgildur aðili að frá og með 1. júlí 2000. Tilgangur hafnarríkiseftirltisins er að stemma stigu við siglingum skipa sem uppfylla ekki alþjóðakröfur um aðbúnað, öryggi og hollustuhætti áhafna kaupskipa, atvinnuréttindi þeirra og mengun frá skipum. Samkvæmt samkomulaginu er aðildarríkjum gert að skoða a.m.k. 25% af öllum kaupskipum sem hafa viðkomu í höfnum aðildarlandanna. Milli 400-600 erlend kaupskip koma á ári hverju til íslenskra hafna.

Margir þættir hafa áhrif á hvaða skip eru tekin til skoðunar. M.a. er litið til þess hvort athugasemdir hafi verið gerðar á skipinu í fyrri hafnarríkisskoðun þar sem ákveðinn frestur hefur verið gefinn til úrbóta og er stuðst við upplýsingar úr gagnagrunni Parísarsamkomulagsins.

Greinargerðir frá fundum Parísarsamkomulagsins um hafnarríkiseftirlit

Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi