Farbannsnefnd skipa

Í IV. kafla laga um eftirlit með skipum, nr. 47/2003 er fjallað um farbann. Eigi að leggja skipi úr höfn án þess að það hafi gild viðeigandi skírteini samkvæmt reglum samkvæmt ákvæðum alþjóðasamþykkta og/eða samnings um Evrópska efnahagssvæðið eða haffærisskírteini eða skip er annars óhaffært á gerð skal leggja farbann á það.  Siglingamálastjóri getur lagt farbann á skip.

Farbannsnefnd var skipuð 1. maí 2004 til þriggja ára, þ.e. til 30. apríl 2007. Um nefndina er fjallað í 24. og 25. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 47/2003.  Farbannsnefnd fjallar um kærur sem útgerðarmaður skips eða skipstjóri senda nefndinni vegna farbanns sem siglingamálastjóri hefur lagt á skip. Allir nefndarmenn eru skipaðir án tilnefningar.

Í nefndinni eiga sæti:
Aðalmenn:
Ástríður S. Thorsteinsson, lögfræðingur, formaður
Sævar Harðarson, verkfræðingur
Benedikt E. Guðmundsson, skipaverkfræðingur
Guðjón Ármann Eyjólfsson, fyrrv. skólameistari
Björgvin Jóhannsson, fyrrv. skólameistari og tæknifræðingur

Varamenn:
Jónatan Sveinsson, hæstaréttarlögmaður
Pálmi Hlöðversson, framhaldsskólakennari
Ásgeir Guðnason, vélfræðingur
Auðunn Ágústsson, skipaverkfræðingur
Þorvaldur Guðmundsson, skipstjóri.

Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi