STCW-skírteini

Alþjóðleg atvinnuskírteini - STCW

Um alþjóðleg atvinnuskírteini (STCW) til starfa á íslenskum og erlendum farþegaskipum og flutningaskipum fer eftir lögum nr. 76/2001 og reglugerð nr. 416/2003 með síðari breytingum, sjá umsóknareyðublað um útgáfu eða endurnýjun á alþjóðlegu skírteini.  Á heimasíðu Siglingastofnunar má nálgast upplýsingar um skipulag skipstjórnarnáms og vélstjórnarnáms.  

Siglingastofnun hefur tekið saman spurningar og svör vegna þessara alþjóðlegu atvinnuskírteina:

 

            Spurningar og svör vegna skipstjórnarskírteina

            Spurningar og svör vegna vélstjórnarskírteina

            Spurningar og svör vegna skírteinis aðstoðarmanns í brú og/eða í vél

 

Þeir sem ætla að sækja um alþjóðleg atvinnuskírteini til starfa á farþega- og flutningaskipum þurfa að fylla út umsóknareyðublað sem nálgast má á heimasíðu Siglingastofnunar og á skrifstofu Siglingastofnunar í Kópavogi/Ísafirði.  Siglingastofnun miðar við að afgreiða skírteini innan 5 virkra daga frá því öll gögn hafa borist. Umsækjendur geta óskað eftir því að fá skírteinið póstsent eða sótt það á skrifstofu Siglingastofnunar. Eftirtalin gögn þurfa að fylgja umsókn áður en hún er tekin til afgreiðslu:

 

  • Prófskírteini sem staðfestir menntun umsækjanda
  • Ljósrit eldra atvinnuskírteinis, ef um endurnýjun er að ræða
  • Staðfesting á siglingatíma. Ef um er að ræða siglingatíma á íslenskum skipum sem eru 20 BT og stærri gildir sá siglingatími sem skráður er í lögskráningarkerfi sjómanna. Siglingatíma á öðrum skipum þarf að sanna með því að leggja fram sjóferðabók eða vottorð tveggja trúverðugra manna.
  • Gilt læknisvottorð yngra en 6 mánaða.
  • Tvær myndir í vegabréfastærð.
  • Skírteinisgjald. Um gjald fyrir útgáfu og endurnýjun atvinnuskírteinis fer eftir gjaldskrá Siglingastofnunar Íslands, nr. 81/2007 en gjaldið er kr. 7.000 og greiðist inn á reikning nr. 0301-26-996 í Kaupþingi. Reiknings­eigandi er Siglingastofnun Íslands, kt. 520996-2819. Umsókn er aðeins tekin til afgreiðslu þegar gjald hefur verið greitt. Greiðslukvittun má senda rafrænt á netfangið sigling@sigling.is eða á fax 560 0060.

Listi yfir handhafa STCW-skírteinis

Um alþjóðasamþykktina

Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi