Útgáfa stofnunarinnar

Siglingastofnun leggur áherslu á markvissa miðlun upplýsinga. Vefur stofnunarinnar og fréttabréfið Til sjávar mynda kjarnann í upplýsingastarfseminni. Fréttabréfinu er dreift án endurgjalds til skráðra skipa og báta, útgerða, hafna, sveitarfélaga, alþingismanna, fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. Í blaðinu eru greinar og fréttir um það helsta sem gerist á vettvangi stofnunarinnar. Öll tölublöð Til sjávar má lesa á vef Siglingastofnunar (pdf-útgáfa).

Siglingastofnun Íslands gefur að auki út ýmiss konar skýrslur á sviði hafnagerðar, rannsókna og þróunar, kynningbæklinga um stofnunina, fræðsluefni ýmiss konar um öryggismál og margt fleira. Lista yfir skýrslur og útgefið efni er að finna á síðunni Skýrslur o.fl. Þar er einnig hægt að nálgast rafræna útgáfu efnissins.

 

 

Veður og sjólag
Framkvæmdir
Öryggi sjófarenda
Vakstöð siglinga

Leit

Leit
Leturstærð
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Breyta bakgrunnslit
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi